Náttúrufræðingurinn - 1961, Qupperneq 28
22
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ertna frá öðra foreldri, en vísi til sléttra frá hinu. Eiginleikinn
„sléttar ertur“ er sterkari en eiginleikinn „hrukkóttar ertur“ og
verður þess vegna ofan á. Slíkir eiginleikar kallast rikjandi eigin-
leikar, en hinir, sem hverfa fyrir ríkjandi eiginleikum, kallast
víkjandi. Víkjandi eiginleikar, eins og hrukkóttu erturnar, koma
því aðeins fram, að erfðastofnar fyrir þeim erfist frá báðum for-
eldrum. Þeir koma fram í öðrum ættlið kynblendinganna í tilraun-
um Mendels.
Fyrirrennarar Mendels og samtímamenn gerðu ráð fyrir, að eig-
inleikar beggja foreldra blönduðust í afkvæminu, líkt og tveir
vökvar blandast, og yrðu þá ekki aðgreindir í eiginleika foreldr-
anna að nýju.
Tilraunir Mendels sýndu liins vegar, að erfðaeiningarnar berast
óbreyttar milli ættliða, með því að eiginleikar foreldranna, til dæm-
is hrukkóttar og sléttar ertur, kornu fram óbreyttir í öðrum kyn-
blendingsættlið.
Heimurinn bar ekki þroska til að skilja verk Mendels árið 1866.
Enginn vísindamaður skynjaði mikilvægi niðurstaðna hans, og
Mendel andaðist árið 1884, án þess að hann hlyti nokkra viður-
kenningu fyrir störf sín.
Árið 1900 unnu þrír vísindamenn í þremur löndum — óafvit-
andi hver um annan — samtímis að tilraunum, sambærilegum til-
raunum Mendels. Þeir komust allir að sams konar niðurstöðum og
rákust þá á rit austuríska ábótans og vöktu athygli umheimsins
á þeim. ; ’ t i |TJj
Uppgötvun lögmála Mendels árið 1900 er talin upphaf erfða-
fræðinnar sem nútímavísinda. Síðan hefur þessi vísindagrein verið
í örum vexti, og er raunar enn.
I byrjun Iiinnar tuttugustu aldar — í bernsku erfðafræðinnar —
beindist atorka erfðafræðinga einkuin að því að uppgötva og hrein-
rækta með jurtum og dýrum hvers kyns eiginleika og athuga á
hvern hátt þeir erfðust.
Við vitum nú um ókjör eiginleika eða einkenna í öllum gerðum
lífvera: dýrum, jurtum og smáverum, sem erfast samkvæmt lög-
málum Mendels.
Jafnframt hófu menn snemma leit að genunum, erfðavísunum,
sem stýra erfðunum, og fundu þau í öllum frumukjörnum: í þráð-
um, sem litningar eða krómósóm kallast. Litningarnir eru ósýni-