Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 38

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 38
32 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN getið frá nokkrum stöðum á landinu, en það hafi allt reynzt vera Ch. polyanthus (L.) Corda ap. Opiz var. fragilis (Roth) K. M. Telur hann þetta afbrigði algengt um land allt, en Ch. polyanthus, aðal- tegundina, fann hann aðeins á einum stað. í fyrrnefndri bók Ar- nells er þess getið við bæði Ch. polyanthus var. fragilis og Ch. pal- lescens, að þessar tegundir vaxi hérlendis. Chiloscyphus frá tveim fundarstöðum finnst mér mjög hæpið að geti verið Ch. polyanthus var. fragilis, en miklu líklegra, að hér sé um að ræða Ch. pallescens. Fundarstaðirnir eru: Heiðmörk, ágúst 1959 og Kambar, sept. 1959. 7. Gymnomilrium apiculatum (Schiffner) Jörg. Möðruvellir í Hörgárdal, ágúst 1959 (Hörður Kristinsson). Sýnis- hornið er þéttur 2 cm hár smáhnaus, næstum hreinn, aðeins smá- vegis mengaður Lophozia. Tegund þessi hefur mér vitanlega ekki fundizt hér áður, en héðan eru þekktar tvær aðrar Gymnomitrium tegundir, G. concinnatum (Lightf.) Corda ap Sturm og G. coral- lioides Nees, og eru báðir frekar algengar, einkum C. concinnatum. G. apiculatum er heldur lægri en hinir tveir og mun mjórri, dekkri, brúnn eða rauðbrúnn, en hinir oftast gráleitir, blöðin eru minni og blaðseparnir yddir og enda oftast í innbeygðum, litlaus- um smábroddi, gerðum úr tveim sellum. Blaðröndin er litlaus, en oftast aðeins ein eða tvær selluraðir og eru skilin oft mjög skörp milli þeirra og innri hluta blaðsins. G. apiculatum vex utan íslands m. a. í Skandinavíu-hálendinu, Síberíu, Austurríki og Grænlandi. 8. Marsupella revoluta (Nees) Lindb. Hafnarfjarðarhraun, febr. 1960, utan í rökum, hallandi kletta- vegg. Hesselbo fann þessa tegund aðeins á einum stað á landinu, í Súgandafirði. 9. Marsupella emarginata (Ehrh.) Dum. Sunnan Hafnarfjarðar, okt. 1959, í rökum sandi í tjarnarbakka. Hesselbo getur hennar frá 3 stöðum: Dýrafjörður NV, Holt S. og Seljaland S. Ýmsar tegundir, sem Hesselbo telur algengar um land allt, virðast mér fremur sjaldgæfar á því svæði, sem ég hef rannsakað, en mínar

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.