Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 39

Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 39
NÁTTÚRUF.RÆÐINGURINN 33 grúskanir eru það skammt á veg komnar, að ekki er ástæða til að gera nánari grein fyrir því að sinni. Fæstir mosar bera nokkur íslenzk nöfn, og þá sízt lifrarmosarnir. Vonandi verður gerð tilraun til að skíra algengustu mosana íslenszk- um nöfnum í náinni framtíð, en það getur reynzt vandasamt verk. Orðið „lifrarmosar" nota ég yfir Hepaticae og er svo gert meðal flestra nærliggjandi þjóða (Levermoser, Levermossor, Lebermoose o. s. frv.). Yfir Musci nota ég „blaðmosar". Við þetta er þó það að athuga, að hluti lifrarmosanna (Jungermaniales akrogynae) eru greinilega skiptir í stöngul og blöð, en úr ógreindu þali er aðeins minnihluti tegundafjöldans (Anthocerotales, Marchantiales og Jun- germaniales anakrogynae). Sumir hafa notað orðið „hálfmosar" um lifrarmosa, en ekki felli ég mig reglulega vel við það orð. Eins og kunnugt er hafa mosar engar rætur, en sellur eða selluþræði, sem svipar til róta (rhizoides). Þetta nefni ég rætlinga. Undirblöð nefni ég það, sem á vísindamáli er nefnt amphigastria. Að sjálf- sögðu má deila um, hversu heppileg þessi orð eru. HEIMILDARIT - REFERENCES Arnell, Sigfrid 1956. Illustrated Moss Flora of Fennoscandia, I. Hepaticae. Lund. Cams, Helmut 1957. Kleine Kryptogamenflora. Bancl IV. Moos- und Farn- pflanzen. Stuttgart. Hesselbo, Aug. 1918. The Bryophyta of Iceland. The Botany of Iceland, Vol. I, part 4. Copenhagen. Steindórsson, Steindór 1935. Flórunýjungar 1934. Skýrsla Náttúrufræðiféiagsins 1933-1934. Reykjavík. SUMMARY About rare Icelandic Hepatics by Bergþór Jóhannsson Nr. 1, Calypogeia fissa (L.) Raddi, found in SW-Iceland and nr. 7, Gymno- mitrium apiculatum (Schiffner) Jörg., found in N.-Iceland are new species to the Icelandic moss flora. Nr. 2—6 and 8—9 are rare species reported from new localities.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.