Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
45
Endurskoðendur reikninga:
Ársæll Árnason, bókbindari. Kristján A. Kristjánsson kaupmaður.
Til vara: Eiríkur Einarsson, verzlunarmaður.
Ritstjóri Náttúrufrœðingsins:
Sigurður Pétursson, dr. phil.
Afgreiðslumaður Náttúrufrrrðingsins:
Stefán Stefánsson, bóksali.
Stjórn Minningarsjóðs Eggerts Ólafssonar:
Jóhannes Áskelsson, menntaskólakennari (formaður).
Ingólfur Davíðsson, mag. scient. (ritari).
Guðmundur Kjartansson, mag. scient. (féhirðir).
'1 il x>ara: Sigurður Pétursson og Ingimar Óskarsson.
Aðalfundur
Aðalfundur fyrir árið 1960 var haldinn í 1. kennslustofu Háskólans laugar-
daginn 25. febrúar 1961. Fundinn sátu 24 félagsmenn. Fundarstjóri var kjör-
inn Tómas Tryggvason, fil. lic., og fundarritari Óskar Ingimarsson, cand. phil.
Formaður minntist látinna félaga og flutti skýrslu um starf félagsins á liðnu
ári.
Úr stjórn félagsins skyldu ganga þeir Einar B. Pálsson og Unnsteinn Stefáns-
son. Einar var endutkjörinn, en Unnsteinn baðst undan endurkjöri, og var
í hans stað kjörinn Ingvar Hallgrímsson, mag. scient.
Dr. Sigurður Þórarinsson bar fram tillögu um, að fundurinn lýsti eindregn-
um stuðningi við þá hugmynd að friðlýsa sem þjóðvang jörðina Skaftafell í
Öræfum, og var það samþykkt einróma.
Fræðslustarfsemi
Á árinu voru haldnar sex samkomur og á liverri þeirra flutt erindi um nátt-
úrufræði og sýndar skuggamyndir. Ræðumenn og erindi voru sem hér segir:
Guðmundur Kjartansson. Landslag á Kili í ísaldarlok, Steingrímur Baldursson:
Efni og andefni, Sigurjón Rist: Dýptarmælingar í íslenzkum stöðuvötnum,
Páll Theódórsson. Rannsóknastöð dönsku kjarnorkunefndarinnar á Risö, Sig-
urður Þórarinsson: Blágrýtissvæði Bandaríkjanna, Columbia-hásléttan og
Hawaii, og Björn Sigurbjörnsson: Kynbætur á melgrasi. Á flestum samkomun-
um urðu nokkrar umræður um efni erindanna. Fundarsókn var góð og frem-
ur jöfn, 77 manns að meðaltali.
Fræðsluferðir voru farnar fleiri og fjölmennari en nokkru sinni áður: tvær
stuttar um nágrenni Reykjavíkur og ein þriggja daga ferð inn á Kjöl. Þátt-
taka var 120-130 manns í stuttu ferðunum, en 43 í Kjalarferðinni. Leiðbein-
endur um nátturufræði í þessum ferðum voru: Guðmundur Kjartansson og
Þorleifur Einarsson (urn jarðmyndanir), Ingólfur Davíðsson og Eyþór Einars-