Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 7
% kviðpokaseiða með sundmaga
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
fyrir kviðpokaseiðin en hann eykur
flot- og hreyfigetu seiðisins, sem
veldur því að kviðpokaseiðið eyðir
minni orku í að halda sér á réttum
stað í vatnssúlunni í leit að æti.
Niðurstöður úr klaktilraununum6
sýndu að stærri kviðpokaseiði sem
klöktust úr stærri hrognum voru
líklegri til að mynda sundmaga en
þau sem klöktust úr minni hrogn-
um (14. mynd). Þannig myndaðist
sundmagi hjá 60-100% af þeim
kviðpokaseiðum sem klöktust úr
hrognum sem voru > 1,5 mm af
þvermáli á meðan mjög mikill
breytileiki (0-100%) einkenndi
sundmagamyndun hjá kviðpoka-
seiðum úr minni hrognum.
14. mynd. Stærð hrogna og hlutfall kvið-
pokaseiða sem mynduðu sundmaga við 10
daga aldur.6
70
1 2 3
Vertfð
15. mynd. Dánartíðni hrogna sem safnað
var frá hrygnum sem voru að hrygna í
fyrsta skipti (1), annað skipti (2) og þriðja
skipti (3). Meðal þvermál hrogna
(1,22-1,32 mm) er skráð fyrir ofan hverja
s úlu.‘
16. mynd. Frjóvguð þorskhrogn: Til vinstri eru hrogn á svokölluðu linsustigi (2 daga
gömul) en til hægri eru 6 daga gömul hrogn. Fóstrin fljóta ofan á vökva og forðanæringu
semfyllir megnið afinnra rými hrognsins. Ljósm. Guðrún Marteinsdóttir.
H RYG NIN GARREYN S LA
OG GÆÐI HROGNA
Margt bendir til þess að hrygnur
sem eru að hrygna í fyrsta skipti
myndi hrogn sem hafa minni lífslík-
ur en hrogn frá hrygnum sem hafa
meiri hrygningarreynslu (15.
mynd). Þannig hafa niðurstöður úr
rannsóknum sem voru fram-
kvæmdar við Hafrannsóknastofn-
unina í Bergen í Noregi sýnt að
hrygnur sem hrygna í fyrsta skipti
framleiða smærri hrogn með hærri
dánartíðni á klaktímabilinu en þær
sem hrygndu í annað og þriðja skip-
ti (15. mynd).3-8'9 Þessar rannsóknir
voru byggðar á 65 athugunum þar
sem fylgst var með sömu hrygnun-
um í samtals þrjú ár.
Hrygningartími
Hrygning þorsks getur staðið yfir í
margar vikur. Þannig er ljóst að
hver hrygna losar hrogn oft á
hrygningartímabilinu enda líffræði-
lega nauðsynlegt þar sem hún hefur
ekki pláss fyrir öll hrognin í kviðar-
holinu þegar þau hafa náð fullri
stærð. Þannig þroskar hún hluta af
hrognunum í senn og losar þau í
áföngum. Hrognasekkurinn inni-
heldur því hrogn á mismunandi
þroskastigum en það er ekki fyrr en
nokkrum klukkustundum fyrir
hrygningu að sá hluti hrognaima
sem stendur til að losa nær fullum
þroska. Þegar þetta gerist þenjast
hrognin út með því að draga í sig
vökva úr hrognasekknum. A þess-
um tíma á sér oft stað flókið atferli
þar sem hængur og hrygna spinna
sig saman í spíral upp eftir vatns-
súlunni. Við hrygninguna sprautar
hængurinn út sviljunum um leið og
hrognin renna út úr gotraufinni.
Svil og hrogn blandast saman í sjón-
um og um leið og frjóvgun hefur
orðið harðnar ysta frumulag egg-
himnunnar þannig að yfirborð
hrognsins verður ógegndræpt.
Fjöldi hrygninga er mjög mis-
munandi og fer það m.a. eftir stærð
og ástandi hrygnanna. Talið er að
stórar hrygnur geti hrygnt allt að 30
17. mynd. Hlutfall hrygna sem eru hrygn-
andi ( þ.e. á 3. stigi) á meginhrygningar-
stöðvum þorsks á Selvogsbanka og ná-
grenni árin 1994-1999. Efsta myndin
sýnir hrygnur sem voru stærri en 100 cm.
Næsta mynd fyrir neðan sýnir hrygnur
sem voru 75-100 cm og neðsta myndin
sýnir hrygnur sem voru minni en 75 cm.
Vikur aprílmánaðar eru innan gráu
línanna.
7