Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 8
Náttúrufræðingurinn
sinnum og að 1-2 dagar líði á milli
hrygninga.9 A þennan hátt er talið
að þorskurinn dreifi afkvæmum
sínum í tíma og rúmi þannig að
meiri líkur séu á að a.m.k. hluti af-
kvæma hans klekist út við góðar
umhverfisaðstæður.
Hrygningartími þorsks á megin-
hrygningarstöðvunum við Suðvest-
urland er breytilegur hjá hrygnum
af mismunandi stærð (17. mynd).10
Þannig er hrygningartími lengstur
hjá stærstu hrygnunum en stystur
hjá þeim smæstu. Hrygning hjá
stóru hrygnunum hefst um miðjan
mars og getur staðið fram í lok apr-
íl eða byrjun maímánaðar. Hrygn-
ingin hjá smæstu hrygnunum fer
oftast ekki af stað fyrr en um miðjan
apríl og er lokið 2-3 vikum seinna.
Þetta er þó ekki algilt og virðist
hrygning stundum eiga sér stað
seinna, í maí, á svæðum utarlega á
Selvogsbanka og í köntunum með-
fram landgrunnsbrúninni (svæði
3.5 og 4.1 á 20. mynd) eða jafnvel
ekki fyrr en í júní-júlí irtni á fjörðum
á Norður- og Austurlandi. Einnig
skal haft í huga að hængarnir eru
yfirleitt fyrr á ferðinni en hrygnurn-
ar og eru þeir oft byrjaðir að sprauta
töluvert áður en hin eiginlega
hrygning hefst.
Hrygning á öðrum stöðum við
landið fylgir ekki endilega sama
ferli. Þannig byrjaði hrygning til-
tölulega seint, eða í byrjun apríl-
mánaðar, á suðaustursvæðinu árin
Vikur frá áramótum
18. mynd. Hlutfall hrygnandi hrygna (á 3.
stigi) við Suðausturland árin 1999 (efri
mynd) og 2000 (neðri mynd).
1999 og 2000 (18. mynd). Ólíkt því
sem tíðkaðist á Selvogsbanka þá var
lítill munur á hrygningartíma stórra
og smárra þorska (18. mynd).
I Grundarfirði hófst hrygningin í
byrjun mars árið 1998 (19. mynd).
Þegar sýnatökum lauk í byrjun maí
var hrygning enn í fullum gangi. A
þessu svæði var hrygningartíminn
svipaður hjá hrygnum af mismun-
andi stærð. Þó má benda á að lítið
sem ekkert var af hraðvaxta og stór-
um hrygnum (10-30 kg) á þessu
svæði.
I Eyjafirði hófst hrygning í byrjun
19. mynd. Hlutfall hrygnandi hrygna (á 3.
stigi )í Grundarfirði (efst), Eyjafirði og
Stöðvarfirði (neðst) vorið 1998.
aprílmánaðar árið 1998 (19. mynd).
Megnið af hrygningarfiskinum var
á stærðarbilinu 76-90 cm en um
miðbik tímabilsins komu göngur af
stærri fiski (>100 cm). Þegar sýna-
tökum var hætt í lok maímánaðar
var enn töluverður fjöldi af hrogna-
fullum hrygnum sem áttu eftir að
hrygna oftar en einu sinni. Því má
telja líklegt að hrygning geti staðið
langt fram á sumarið á þessu svæði.
I Stöðvarfirði hófst hrygning lík-
lega um miðjan mars 1998 (19.
mynd). Þegar sýnataka hófst í byrj-
un apríl var hrygning komin á full-
an skrið. Hrygningu var ekki lokið
þegar sýnatöku var hætt um miðjan
maímánuð. Lítið sem ekkert var af
stórum fiski (> 100 cm).
Mælingar á hrygnandi þorski,
bæði á vegum klak- og hrygningar-
rannsókna og netaralls Hafrann-
sóknastofnunarinnar, hafa sýnt að
stærstu þorskarnir hrygna við
mynni jökulánna sem renna til sjáv-
ar við suðurströndina (svæði 3.1,
3.2, 5.1, 5.2 og 5.3 á 20. mynd).11’13
Sum ár gengur einnig tiltölulega
stór fiskur til hrygningar í Garð-
sjónum norður og norðaustur af
Reykjanesi (svæði 2.2). Talið er að
þessi hrygningarsvæði séu sérstak-
lega góð, m.a. vegna þess að
ferskvatnsrennslið stuðlar að lag-
skiptingu þannig að ferskur sjór
flýtur ofan á og myndar þannig eðl-
isþyngdarlag sem þjappar saman
hrognum, kviðpokaseiðum og átu í
efstu lög sjávar þar sem sólar gætir
og þörungavöxtur er mikill. Einnig
er ljóst að á þessum svæðum gætir
áhrifa frá strandstraumi og hefur
verið sýnt fram á að þegar hann er
sterkur þá hrífur hann með sér egg
og lirfur á strandsvæðunum og ber
þau inn á rekbrautina vestur af
landinu í átt að uppeldissvæðunum
fyrir norðan land.214
Eru „AULARNIR" bestir?
Sjómenn hafa um langt skeið kallað
stóru hrygningarþorskana „aula".
Aður fyrr var oft töluvert af þessum
fiskum við suðurströndina en í dag
bendir margt til að þeim hafi veru-
lega fækkað (niðurstöður úr klak-
rannsóknum og netaralli Hafrann-
sóknastofnunarinnar). Eins og fram
hefur komið er ljóst að framlag stór-
þorsks til hrygningar og klaks er
hlutfallslega meira en framlag smær-
ri þorska. Haft skal þó í huga að með-
alstórir hrygningarþorskar (90-110
cm) gefa einnig mikið af sér og ef þeir
eru í góðu ástandi þá mynda þeir
góð hrogn sem hafa góðar lífslíkur.
Þannig hefur komið glöggt í ljós að
ástand hrygningarþorskanna skiptir
ekki minna máli en stærð þeirra, þar
8
J