Náttúrufræðingurinn - 2006, Qupperneq 13
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Berghlaup þetta hefur fallið efst úr
Esjubrúnum og kastast niður á lág-
lendið allt í sjó fram.7 Fremstu urð-
artoturnar eru 300-400 m undan
landi úti í Hofsvík. Sjávarurðin fer á
kaf á flóði en á fjöru myndar hún
áberandi skerjaklasa í víkinni. I
Esjuhlíðum er urðin mjög hulin
skriðum og aurkeilum en þó má
auðveldlega rekja miðhluta hennar
upp að brotsárinu í háfjallinu. Jaðrar
hennar til hliðanna eru hins vegar
afar óljósir og víða ósýnilegir. Yngri
skriður liggja þar upp að þeim og
hafa fært þá í kaf. Upprunaleg yfir-
borðsform urðarinnar eru mjög
máð. Hún hefur verið allstórgrýtt og
við ströndina og uppi í hlíðarfætin-
um eru stór björg og bergkastalar
áberandi innan um smágerðari
mulning. Brotsárið myndar allmikla
skál í fjallsbrúninni, sem þó hefur
ekki hina reglulegu hvilftarlögun
sem einkennir mörg berghlaup.
Hlauplengdin frá efstu brún brot-
skálar að ystu totum urðar er um
2900 m. Fallhæðin er 725 m. Út-
hlaupshornið er því 13,8°. Flatarmál
urðarinnar er um 2 km2, þar af 0,4
km2 í sjó. Breiddin við strönd er 1000
m. Rúmtak urðarinnar er illa þekkt
en hér er áætlað að það sé um 20
milljón rúmmetrar (20x106 m3).
Fjörumór ofan á hlaupinu og lag
urðartungunnar úti fyrir ströndinni
sýna að sjór hefur staðið lægra við
landið er urðin hljóp fram en hann
gerir nú. Hún gæti hafa fallið á tíma-
bilinu 5000-8000 f.Kr. (6000-9000
BP) en þá stóð yfirborð heimshaf-
anna nokkru neðar en í dag. Raunar
er óvíst hvort urðin náði til strandar
er hún féll því þegar sjór stóð lægst
við Faxaflóa snemma á nútíma lá
ströndin langt út af Hofsvík.8 Hefði
hún fallið við það sjávarborð sem nú
ríkir er ljóst að skriðuflóðbylgja
(tsunami) myndi hafa borist um
Faxaflóa (2. mynd). Bylgjan hefði þá
brotnað á strandlengju Reykjavíkur
innan frá Laugarnesi og út á Sel-
tjarnarnes en 11-12 km er yfir sund-
in að fara. Vafalítið hefði hennar ein-
nig orðið vart á Vatnsleysuströnd.
Engin ummerki slíkrar bylgju eru
þó þekkt. Rúmtak sjávarurðarinnar
er gróflega áætlað 4xl06 m3.
Astæðurnar fyrir Sjávarhólaberg-
hlaupinu eru líklega þær að þar hef-
ur farið saman rof jökla og sjávar
undan hrungjarnri fjallshlíð. Hugs-
anlega hafa jarðskjálftar einnig kom-
ið við sögu. Þótt ekki séu líkur á stór-
um berghlaupum úr Esjuhlíðum við
þær aðstæður sem ríkja í dag er enn
töluverð skriðuhætta á þessum slóð-
um og smáar aurskriður eru algeng-
ar. Árið 1747 segir Ölfusvatnsannáll
frá hamförum á Kjalarnesi:
„Á því vori féll sú mikla skriða eður
jarðarumrótan úr Esjunni, sem af
tók mikinn part Öfugskeldu og
Sjávarhóla-land. Hún tók til sjávar
ofan, svo mikilfeng, að ekki er auð-
velt frá að segja." 9
I Ferðabók Eggerts og Bjarna er
minnst á þetta skriðuhlaup.10 Skrið-
unni sjálfri er ekki lýst en þess getið
að þar hafi sést birkilurkar sem
voru sverari en stærstu tré í Húsa-
fells- og Fnjóskadalsskógum. Bær-
inn Öfugskelda (eða Ófeigskelda)
virðist ekki hafa verið byggður upp
eftir þetta en hann stóð skammt
suðvestan við Skrauthóla. Ummerki
þessarar miklu skriðu eru ekki
þekkt og virðast að mestu horfin.
Líklegast er að hún hafi átt upptök
sín í berghlaupsurðinni ofarlega í
hlíð og fallið fram milli Skrauthóla
og Sjávarhóla. Þetta hefur sennilega
verið aurskriða en ekki berghlaup
og vafalítið hefur hún verið mörg
hundruð metra breið. Á flóðbylgju
2. mynd. Hér sést afstaða Sjávarhólaberghlaupsins til Reykjavíkur. ímyndaðar flóðbylgj-
urnar breiðast út um Kollafjörð. Hér eru þær sýndar ótruflaðar en í raun myndu eyjar og
sker gerbreyta bylgjumunstrinu. - The location ofthe Sjávarhólar rock slide with respect
to Reykjavík and imaginary tsunami waves. (Kortagrunnur er frá Landmælingum ís-
lands Atlaskort, kortadiskur 2).
13