Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 14
Náttúrufræðingurinn
3. mynd. Víkurhólar við Eyjafjörð. Berghlaupsurðin hefurfært ströndina talsvert út á kafla. Bærinn Ystavík stendur sunnan undir hól-
unum. - The Víkurhólar rock slide in Eyjafjörður, North Iceland (Ljósm. ÁH).
af hennar völdum er ekkert minnst
og líklega hefur hún verið lítil.
VÍKURHÓLAR
Víkurhólar eru annað dæmi um
berghlaup sem fallið hefur í sjó þar
sem nú er þéttbýlt í nágrenninu (3.
mynd). Það hefur fallið efst úr Vík-
urhnjúk í Grýtubakkahreppi við
Eyjafjörð, 18 km utan Akureyrar.11
Efst í Víkurhnjúknum eru sprungur
og augljósir veikleikar í bergbygg-
ingunni og eftir undangröft skrið-
jökla í ísaldarlok hefur fjallshlíðin
verið orðin óstöðug. Þetta hefur
endað með berghlaupi. Um aldur
urðarinnar er erfitt að dæma, Ólafur
Jónsson telur hana „nokkuð elli-
lega". Vala Björt Harðardóttir12
skoðaði jarðvegssnið í henni og birti
í BS-ritgerð sinni. Hún telur hana
um 7000 ára. Sé urðin á þessum
aldri hefur sjór staðið nálægt núver-
andi mörkum og hún því hlaupið í
sjó fram.
Urðin er ólík Sjávarhólaurðinni,
sem teygir sig út fyrir ströndina og
á sér næsta auðsætt framhald neð-
ansjávar. Víkurhólar hafa fært út
ströndina en virðast enda í þver-
bröttu rofstáli þar sem aldan brýtur
jafnt og þétt af því og ber efnið burt.
Urðin er ekki fyllilega stöðug, sem
best sést á því að vart hefur orðið
við sig á veginum í gegn um hólana.
Lengd berghlaupsins er 1720 m,
flatarmál 1,7 km2 og breidd við
strönd er yfir 1600 m.
Hafi Víkurhólar hlaupið í einni
svipan út í sjó, eins og aðstæður
benda til, hefur myndast mikil flóð-
bylgja í Eyjafirði sem kastast hefur
frá strönd til strandar og valdið
miklu brimróti og sjávarflóðum,
jafnt inn við Akureyri sem utar með
firði, svo sem við Dalvík og Greni-
vík. Engin ummerki hafa þó fundist
eftir þessa flóðbylgju, en raunar
hefur þeirra aldrei verið leitað.
Lokaorð
Samkvæmt gögnum sem ég hef
dregið saman eru um 320 þekkt og
rannsökuð berghlaup á landinu.
Um 10% þeirra hafa hlaupið út fyr-
ir núverandi strönd. Hætt er við að
lítil berghlaup úr sjávarhömrum
komi ekki fram í þessum gögnum
því ummerki slíkra hlaupa hverfa
fljótt. Berghlaupatíðni virðist hafa
verið hvað mest á fyrstu öldum og
árþúsundum eftir að ísaldarjöklarn-
ir hurfu en hefur lækkað síðan.
Þekkt eru ein 15 hlaup sem fallið
hafa á sögulegum tíma (3-4% af
heildinni). Þau eru talin upp í 2.
töflu. Eðlilegt er að ætla að um 10%
sögulegu hlaupanna hefðu átt að
falla í sjó, þ.e. sama hlutfall og af
heildarfjölda berghlaupanna. Það
14