Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 29
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
hópnum í tvennt þegar liðið var á
rannsóknartímabilið og í seinni
hluta rannsóknarinnar var einungis
unnt að fylgjast með hluta hópsins.
Við birtum því niðurstöður um
hegðun og félagsgerð þriggja hópa
(hópur I (allur hópurinn 1997), hóp-
ur II (hluti hópsins 1997) og hópur
III frá 1999). Má líta svo á að bæði í
hópi II og III hafi hrossin búið við
nokkra félagslega streitu því í öðr-
um þeirra hurfu sum hrossin af
vettvangi (hópi II) og í hinum (hópi
III) voru ókunnug hross.
I hópi I voru 34 hestar í byrjun; 12
fylfullar hryssur, fimm geldar
hryssur (allar enn með veturgamalt
tryppi á spena), tveir fullorðnir
geldingar og 15 tryppi. Á tímabil-
inu fæddust sjö folöld. I hópi II
voru í byrjun 17 hross; fjórar fylfull-
ar hryssur, þrjár hryssur með
folöld, ein geld hryssa, einn fullorð-
inn geldingur og níu tryppi. Á tíma-
bilinu fæddust tvö folöld (sjá 1.
töflu).
Seinna árið - hópur III - var 31
hestur í stóðinu í byrjun; 23 hestar
frá Skáney, þ.e. 12 fylfullar og tvær
geldar hryssur, tveir fullorðnir
geldingar, sjö tryppi og auk þess
voru átta ókunnug hross sett í hóp-
inn; þrjú frá Litla-Bergi (ein fylfull
hryssa og tveir geldingar) og fimm
frá Birkihlíð (ein fylfull og tvær
geldar hryssur og tvö tryppi; sjá 2.
töflu). Fjórtán folöld fæddust en eitt
varð að aflífa. Átján hestar sem
voru í rannsókninni 1997 voru aftur
í stóðinu 1999.
Árið 1997 hófust mælingar 6. maí
og stóðu til 22. júní. Fyrri hlutanum
lauk 11. júní og var gögnum safnað
í alls 488 klst. fyrir þann hóp (I),
jafnt daga sem nætur. Gögnum var
safnað í 166 klst. í seinni hlutanum
(hópur II). Árið 1999 hófust mæl-
ingar 3. maí og lauk 14. júní og
stóðu þær yfir í 847 klst., líka allan
sólarhringinn.
ÁÐFERÐIR
Bæði árin voru áberandi samskipti,
bæði jákvæð og neikvæð, skráð
5. mynd. Hrossin vingast með því að kljást en þá tanna þau hvort annað. - AUogrooming
is a sign offriendship. Ljósm./photo: Kate Sawford.
6. mynd. Þegar hestarnir kljást hægist á hjartslætti og þeim líður greinilega vel. - Mutual
grooming calms the horses and increases their well-being. Ljósm./photo: Kate Sawford.
athuga áhrif þess að setja ókunnug
hross í hóp kunnugra hrossa. FUuti
niðurstaðnanna hefur birst í erlend-
um tímaritum.1213
SAMSETNING HÓPSINS
OG AÐSTÆÐUR
Hestarnir sem valdir voru í rann-
sóknina voru fylfullar folaldsmerar,
geldar hryssur, geldingar og l-4ra
vetra tryppi. Hrossin voru sett í 8 ha
girðingu til að unnt væri að fylgjast
með þeim öllum frá einum stað.
Þessir hestar eru vanalega í stórum
girðingum og eru úti allt árið. Skán-
eyjarhestarnir þekktu allir hver
annan. Unnt var að reikna út skyld-
leika milli allra hrossanna nema
eins aðkomuhestsins 1999.
Fyrra árið reyndust aðstæður þan-
nig að nauðsynlegt var að skipta
29