Náttúrufræðingurinn - 2006, Qupperneq 30
Náttúrufræðingurinn
þau kljáðust voru teknar svokallað-
ar nágrannamælingar í fyrsta hópn-
um. Teiknuð voru upp kort á hálf-
tíma fresti af staðsetningu hross-
anna og metið hversu nálægt hvert
öðru þau voru. Alls voru 534 slík
kort notuð til útreikninga. (Kort
sem teiknuð voru þegar hrossin
stóðu í heyinu voru ekki notuð.)
Horft var á hestana ýmist úti við
eða í skjóli (9. mynd) og með öflug-
um sjónaukum ef hrossin voru
meira en 50 m í burtu. Ef dvalist var
úti var leitast við að trufla ekki hest-
ana og urðu þeir fljótt vanir því að
höfundar væru í grenndinni.
7. mynd. Hestar á öllum aldri leika sér; sá til hægri er 17 vetra. - Geldings ofall ages play.
The one to the right is 17 years old. Ljósm./photo: Hrefna Sigurjónsdóttir.
jafnóðum í tölvu og hvaða hross
áttu í hlut í hverju tilviki.14 Miðað
var við að mæla hegðun hestanna í
samræmi við skilgreiningar sem at-
ferlisfræðingar er rannsakað hafa
hesta hafa komið sér saman um.15
Jákvæðu samskiptin voru fyrst og
fremst gagnkvæm snyrting (að
kljást) og leikur, en einnig kynferð-
isleg samskipti eins og að riðlast á
öðrum. Þau neikvæðu voru ógnanir
í formi hótana um að bíta eða
sparka og leggja kollhúfur, árásir
sem enduðu með biti, bit, spörk og
afskiptasemi (íhlutun í samskipti
annarra). Viðbrögð þeirra sem árás-
argirnin beindist að (víkja sér und-
an, flýja, engin viðbrögð) voru
einnig skráð til að fá betri upplýs-
ingar um sambandið á milli hest-
anna.
Upplýsingarnar sem fengust gefa
góða mynd af tíðni áberandi sam-
skipta (leikur, gagnkvæm snyrting,
riðlanir, afskiptasemi, bardagar) og
eru áreiðanlegri en tíðni hegðunar
sem er ekki eins áberandi (heilsast,
leggja kollhúfur, hóta að bíta).
Gögnin um ógnanir, árásir og við-
brögð við þeim voru fyrst og fremst
notuð til að meta virðingarröðina í
hópnum.
Til að meta hvort góð fylgni væri
milli þess hve mikið hross héldu
saman í haganum og hversu mikið
8. mynd. Hestar sýna vinarhug m.a. með því að vera mjög nálægt hvor öðrum. - The hor-
ses stand close to their preferred partners. Ljósm./photo: David Noakes.
9. mynd. Notast var við svokallaðan dómarakofa írannsókninni. - The horses were zvatched
from this shed. Ljósm./photo: Hrefna Sigurjónsdóttir.
30