Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 32
Náttúrufræðingurinn
VlRÐINGARRÖÐ
Á Skáney skipuðu hestarnir sér í
greinilegar virðingarraðir í hópun-
um þrem og líka þegar undirhópar
(hryssur annars vegar og geldingar
og tryppi hins vegar) voru greindir.
Þessar raðir voru marktækt línuleg-
ar í öllum tilvikum (Landau's H,
p<0,001).
Fullorðnu hryssurnar réðu yfir
hinum - fullorðnu geldingarnir
ríktu einungis yfir einni (1999) eða
tveimur hryssum (1997), en þeir
ríktu yfir tryppunum (sjá 1. og 2.
töflu). Veturgömlu tryppin sem
gengu enn undir mæðrum sínum
höfðu hærri stöðu en 2ja vetra
systkini þeirra. Líklegt er að það
hafi verið ástæðan fyrir því að ekki
voru marktæk tengsl á milli aldurs
og stöðu meðal tryppanna og geld-
inganna 1997. Þessi tengsl voru aft-
ur á móti marktæk 1999 (Spearman
rho, p<0,01) en þá var ekkert tryppi
enn á spena í stóðinu. Algengt er að
aldur sé marktækt tengdur stöðu í
virðingarröð en aðrir þættir geta
einnig skipt máli.' Ekki kom það á
óvart að um helmingur ókunnu
hrossanna í hópi III var neðarlega í
virðingarröðinni því vitað er að
lengd viðveru hefur áhrif á stöðu
einstaklinganna. ‘9-20-21
Þegar virðingarröð raskast við
það að einhver er tekinn út úr hópi
eða nýir bætast við má búast við
aukinni tíðni ógnana og árása.
Meira var um fjandsamlega hegðun
í hópnum 1999 á Skáney en 1997 og
minnst í hópi I, sem styður þessa til-
gátu (1,98 og 3,0 á hest á sólarhring
að jafnaði 1997 og 5,66 árið 1999).
Marktækur munur reyndist vera á
öllum hópum (t-próf: I og II, p<0,05,
II og III, p<0,01). Aftur á móti eru
áhrif stóðhests óljós í þessu sam-
hengi því mælingar á ýgi í erlend-
um rannsóknum sýna mjög breyti-
legar niðurstöður (5,76-86,4 á hest á
sólarhring).5-21-22 Hve mikil ýgin er
ræðst af ýmsum þáttum og skiptir
samsetning hópa og umhverfisað-
stæður þar eflaust mestu máli. Til
dæmis má búast við að aldur og
reynsla stóðhests skipti máli og að
ýgi aukist þar sem fæðuskortur rík-
ir.
VlNÁTTA
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna
að fullorðnu hryssurnar kljáðust
mest við fullorðnar hryssur bæði
árin (10. mynd) (tRwpróf, p<0,001)
og mest við hryssur frá sama bæ
eins og greining á gögnum frá 1999
sýndi (tRwpróf, p<0,001). Hryssurn-
ar léku sér ekki. Yngri hrossin og
eldri geldingar mynduðu tengsl
bæði með því að kljást og leika sér
og segja má að þau hafi myndað
sérstakan félagshóp á móti hryssun-
um á Skáney (tRwpróf, p<0,001 bæði
fyrir snyrtingu og leik í öllum hóp-
um). Áhugavert er að unghrossin
tengdust ekki mæðrum sínum
(nema sum veturgömlu tryppin
sem enn gengu undir).
Rannsóknir erlendis á sambæri-
legum hópum hafa sýnt fram á
svipað mynstur, þ.e. að hryssur
kljáist við hryssur á svipuðum
aldri,19,23 en aftur á móti eru tengsl
hryssna í hjörðum með stóðhestum
mest við 0-3ja ára afkvæmi sín9,24
(Takhi-hestar (Equus przewalski) -
óbirt gögn fyrri höfundar).
Hross sem voru nálægt hvert
öðru í virðingarröðinni kljáðust
gjarnan og voru tengslin marktæk í
hópi I (tRwpróf, p<0,001) en ekki í
hópi III, sennilega vegna þess að í
þeim hópi skipti meira máli frá
hvaða bæ hrossin voru. í hópi I, þar
sem upplýsingar um næstu ná-
granna eru til, kom í ljós að hrossin
kljáðust að jafnaði við sömu hross
og þau héldu sig nálægt (tRwpróf,
p<0,001). Svipaðar niðurstöður hafa
fengist á hópi hryssna og geldinga
sem rannsakaður var í Skorradal
199625 og erlendis.19-26,27-28
Þegar hópar I og III eru bornir
saman (álíka mörg hross voru í
þessum hópum) kemur í ljós að
hrossin áttu sér fleiri félaga sem þau
kljáðust við seinna árið, sérstaklega
tryppin og geldingarnir (sjá 1. og 2.
töflu). Áhugaverður munur var á
hópunum því í hópi I áttu hryssurn-
ar marktækt fleiri slíka félaga en
ungu hrossin (U-próf, p<0,001) en í
hópi III var þessu öfugt farið (U-
próf, p<0,001). Aðalmunurinn á
hópunum var sá að í hópi III léku
unghryssurnar meira við karlkynið
en í hópi I (G = 8,89, p = 0,03).
Þessi gögn má túlka þannig að
geldingar og tryppi breyti hegðun
sinni meira en fullorðnu hryssurnar
þegar ný hross bætast í hópinn.
11. mynd. Glófext hryssa með nýkastað hestafolald sér við hlið og eldri son sinn, 3ja vetra
geldingi sem gætti bróður síns vandlega. - A mere with her newborn colt and her 3 year old
son who tookgood care ofhis brother. Ljósm./photo: Hrefna Sigurjónsdóttir.
32