Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 41

Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 41
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 4. mynd. Rcmnsóknastöðvar þar sem togað var með bjáíkatrolli sumarið 2005. Stöðvar þar sem sandrækja fannst eru sýndar með gulum deplum en á rauðmerktum stöðvum fannst engin sandrækja. - Sampling sites in the summer of2005. Sites ivhere the brown shrimp wasfound are marked with yellow points whereas red points indicate sites with no brown shrimp. leiran könnuð 1998, 2001 og 2004. Haustið 2004 var mikið af rækju á leirunni, sem síðar var greind sem Crangon crangon, en rækja hafði þá ekki fundist þar fyrr. Greinilega var enn talsvert af sandrækju af ýmsum stærðum á Blikastaðaleiru vorið 2005 (upplýsingar frá Agnari Ing- ólfssyni). Algeng um alla evrópu Sandrækja er af hrossarækjuætt (Crangonidae) og er hún algeng með allri strönd meginlands Evr- ópu, meðfram ströndum Bretlands- eyja og allri strönd Noregs að strönd Finnlands í Eystrasalti og inn í Miðjarðarhaf og Svartahaf. Hún er botnlæg og búsvæði hennar er aðallega í fjörum og á grunnsævi (0-50 m) með sendnum eða leir- kenndum botni. Þéttleiki getur orð- ið verulegur, eða allt að 60 einstak- lingar á fermetra (í bjálkatroll).3 Rækjan lifir í 2-3 ár og getur orðið rúmlega 8 cm að lengd. Rækjur af þessari ætt eru auðgreindar frá öðr- um rækjum á mjög stuttri trjónu. Hún er gráleit með svörtum eða dökkbrúnum þverröndum en hún breytir auðveldlega um lit og lagar sig að botngerðinni. Líffræði sand- rækjunnar er ekki vel þekkt. Sumir telja að hún sé tvíkynja, þ.e. hún verði fyrst kynþroska karldýr á lengdarbilinu 30-55 mm en breytist síðan í kvendýr eftir að hún hefur náð um 44 mm lengd.4 Aðrir telja að rækjan sé einkynja að stórum hluta og að karldýrin verði ekki stærri en 35 mm.5 Kvendýrið ber eggin í klasa á kviðnum í 4-13 vikur, sem ræðst af hitastigi sjávar, og getur fjöldi þeirra náð allt að 4500. I Norðursjó verður vart við kvendýr með egg í rúmlega 10 mánuði á ári en fjöldi þeirra er mestur yfir sumarið ann- ars vegar og fyrrihluta vetrar hins vegar. Þegar lirfur klekjast úr eggj- unum leita þær til botns á nokkru dýpi og lifa þar á smákrabbadýrum. Þegar á líður leita þær síðan inn að ströndinni í fæðuleit og í skjól fyrir afræningjum.4 Mikilvægur HLEKKUR í VISTKERFINU Sandrækja er mikilvæg fæða fyrir ýmsar tegundir þorskfiska og flat- fiska auk margra fuglategunda.6 Sjálf er rækjan mikilvirkur afræningi og sækist aðallega eftir fisklirfum/-seið- um og hryggleysingjum. Því hefur samspil hennar og bráðar verið rann- sakað mikið og sýna margar rann- sóknir sterkt samband á milli afráns sandrækju og nýliðunar á skarkola- seiðum.7-8'9 Þá hefur verið sýnt fram á að sandrækjan hefur áhrif á fjölda ungra samloka.10 Ljóst er að sand- rækjan getur haft töluverð áhrif á samsetningu botndýralífs við strönd- ina og því er mikilvægt að fylgst verði með frekara landnámi hennar hér og áhrifum þess á vistkerfið. Ætt- ingi sandrækjunnar, hrossarækjan (Crangon allmani (Kinahan, 1756)), hefur fundist hér við land en hún lif- ir á meira dýpi (20-250 m).u Þessar tvær tegundir eru mjög líkar en gróf- ir í skel á aftasta halalið þeirrar síðar- nefndu greina þær að.12 Nytjar Sandrækjan hefur lengi verið veidd til manneldis og er nafnið „hrossa- rækjuætt" rakið til þess að hér áður fyrr fóru veiðarnar fram þannig að hestum var beitt fyrir trollið og það dregið í grunnum sjó þar sem ekki var hægt að koma við báti. I dag er aðallega notast við bjálkatroll við veiðarnar. Arið 1950 voru veidd um 5 þúsund tonn af sandrækju í Evr- ópu allri13 en veiðamar náðu há- marki árið 2003 þegar landað var 32 þúsund tonnum og var aflaverð- rnætið um 80 milljónir evra (um 6 milljarðar kr.).14 Mest er veitt í Norð- ursjó og þá aðallega úti fyrir strönd- um Hollands, Þýskalands og Dan- merkur en einnig er rækjan veidd lítilsháttar við Bretlandseyjar, Belg- íu og Frakkland. Aflinn er flokkaður á grind um borð í bátunum þannig að um 90% af rækjunni fer í undir- mál og þar með lifandi í sjóinn á ný ásamt meðafla. Hvort sandrækja 41

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.