Náttúrufræðingurinn - 2006, Qupperneq 42
Náttúrufræðingurinn
verði nýtt við ísland í framtíðinni er
of snemmt að segja til um.
KOMIN TILAÐ VERA?
Fjarveru sandrækjunnar hingað til
má rekja til einangrunar landsins.
Hún virðist hafa borist hingað til-
tölulega nýlega eins og að ofan
greinir, hugsanlega með kjölvatni
skipa. Sýni hafa verið send til
DNA/DKS-greiningar í Hollandi og
benda fyrstu niðurstöður til náins
skyldleika við sandrækjur í Norð-
ur-Evrópu. Sandrækjan er líklega
ertn að nema hér búsvæði og miðað
við kjörsvæði hennar og útbreiðslu
norður eftir allri Evrópu má búast
við að hún láti hér ekki staðar numið
í Breiðafirði heldur haldi áfram að
dreifa sér. Það gæti því orðið afar
fróðlegt að fylgjast með útbreiðsl-
unni næstu misserin. Sumarið 2006
er ætlunin að taka sýni allt í kringum
landið og kortleggja útbreiðslu sand-
rækjunnar enn frekar samhliða rann-
sóknum á skarkolaungviði.
Hitabreytingar
Undanfarin ár hefur sandrækjuafli
aukist í Norðursjó en minnkað að
sama skapi sunnar, eða við strendur
Frakklands og Belgíu. Jafnframt
veiðist sandrækjan nokkru dýpra
en áður og eru þessar breytingar
raktar til hærri sjávarhita.14 Síðast-
liðin 7-8 ár hafa orðið töluverðar
breytingar á hita og seltu í Atlants-
hafssjónum vestan við Island og
hefur hitastig hækkað um tæplega
eina gráðu.15 Á sama tíma hefur orð-
ið vart við breytingar á útbreiðslu
fisktegunda hér við land.16 Það er
því freistandi að draga þá ályktun
að hugsanlegur fundur sandrækj-
unnar hér við land tengist þessum
breytingum í sjónum. Jafnframt er
ekki hægt að útiloka að rækjan hafi
leynst hér á afmörkuðum svæðum í
einhvern tíma og því ekki fundist
við fyrri sýnatökur. I hlýindunum
síðustu ár hafi hún svo náð sér hratt
á strik og útbreiðsla hennar aukist.
Hins vegar lifir sandrækjan við
margbreytileg skilyrði og því ólík-
legt að hún hverfi alveg þótt hita-
stig sjávar lækki aftur.
ENGLISH SUMMARY
The brown shrimp Crangon crangon
recorded in Icelandic waters
The brown shrimp, Crangon crangon
Linnaeus, 1758, is identified and recor-
ded for the first time from the coast of
Iceland. Its presence seems to be limited
to the west coast of Iceland in densities of
a few individuals per 100 m1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 to over 400
per m2. No specimens were found on the
north coast. The brown shrimp is widely
distributed along the coast of Europe
from the Black Sea to the north of
Norway and around the British Isles. The
present record substantially extends the
known geographical range of this
species.
HEIMILDIR
1. Einar Hjörleifsson & Jónbjöm Pálsson 2001. Settlement, growth and
mortality of 0-group plaice (Pleuronectes platessa) in Icelandic
waters. Joumal of Sea Research 45. 321-324.
2. Agnar Ingólfsson 1999. The macrofauna of the tidal flats at
Blikastaðir, south-westem Iceland, during a 27-year period. Rit
Fiskideildar 16.141-154.
3. Beukema, J.J. 1992. Dynamics of juvenile shrimp Crangon crangon in
a tidal-flat nusery of the Wadden Sea after mild and cold winters.
Marine Ecology Progress Series 83. 157-165.
4. Boddeke, R., 1989. Management of the brown shrimp (Crangon cran
gon) stock in Dutch coastal waters. Bls. 35-62 í Marine invertebrate
fisheries: their assessment and management (ritstj. J.F. Caddy).
Wiley.
5. Martens, E. & F. Redant 1986. Protandric hermaphroditism in the
brown shrimp, Crangon crangon (L.), and its effects on recruitment
and reproductive potential. ICES C.M.1986/K:37.
6. ICES1996. Report of the Working group on Crangon fisheries and life
history. ICES C.M.1996/K:4.
7. Van der Veer, H.W. & M.J.N. Bergman 1987. Predation by crustaceans
on a newly settled 0-group plaice Pleuronectes platessa population in
the westem Wadden Sea. Marine Ecology Progress Series 35.203-215.
8. Van der Veer, H.W., A.J. Geffen & J.I.J. Witte 2000. Exceptionally
strong year classes in plaice Pleuronectes platessa: are they generated
during the pelagic stage only, or also in the juvenile stage? Marine
Ecology Progress Series 199. 255-262.
9. Gibson, R.N., L. Robb, H. Wennhage & M.T. Burrows 2002.
Ontogenetic changes in depth distribution of juvenile flatfishes in
relation to predation risk and temperature on a shallow-water
nursery ground. Marine Ecology Progress Series 229. 233-244.
10. Hiddink, J.G., Kock, R.P. & W.J. Wolff 2002. Active pelagic migrations
of the bivalve Macoma balthica are dangerous. Marine Biology 140.
1149-1156.
11. Stephensen, K. 1939. Crustacea Decapoda. The Zoology of Iceland,
Volume III, Part 25.
12. Enckell, P.H. 1980. Kráftdjur. Bokförlaget Singum i Lund.
13. ICES 2001. Report of the Working Group on Crangon Fisheries and
Life History. ICES C.M.2001/G:10.
14. ICES 2005. Report of the Working Group on Crangon Fisheries and
Life History. ICES C.M.2005/G:01.
15. Héðinn Valdimarsson & Steingrímur Jónsson 2004. Area 3. Icelandic
waters. Viðauki í: Report of the Working Group on Ocean
Hydrography. ICES CM 2004/C:06. 99-103.
PÓST-OG NETFÖNG HÖFUNDA
Bjöm Gunnarsson
bjogun@hafro.is
Þór Heiðar Ásgeirsson
thoras@hafro.is
Hafrannsóknastofnunin
Skúlagötu 4
IS-101 Reykjavík
UM HÖFUNDA
IBjöm Gunnarsson stundaði nám við Háskólann í
Gautaborg í Svíþjóð og lauk þaðan MS-prófi í sjáv-
arlíffræði 1994. Hann nam umhverfisfræði við sama
skóla 2003-2004. Hann hefur starfað sem sérfræð-
ingur á Hafrannsóknastofnuninni frá árinu 1994.
Þór Heiðar Ásgeirsson lauk MS-prófi í sjávarvist-
fræði frá Massachusetts-háskólanum í Boston í
Bandaríkjunum 1992. Hann hefur starfað sem sér-
fræðingur á Hafrannsóknastofnuninni frá 1998 og
sem aðstoðarforstöðumaður Sjávarútvegsskóla
Háskóla Sameinuðu þjóðanna frá 1999.
42