Náttúrufræðingurinn - 2006, Síða 52
Náttúrufræðingurinn
2. mynd. Steingn'msfjörður fullur af hafís 8. maí 1969. - Steingrímsförður. The fjord isfull of drift ice May 8, 1969. Ljósm./photo:
Hjálmar R. Bárðarson.
svæðum og er að mestu leyti á floti,
er hún nefnd jökulþilja. íseyjar verða
til þegar hlutar brotna úr henni og
fara á rek um norðurheimskauts-
svæðið. Iseyjamar geta oft verið 50
metra þykkar og em þá um 5 m ofan-
sjávar. Sennilega er stærsta íseyjan
sem fundist hefur til þessa nálægt
1.000 ferkílómetrar að flatarmáli.
íseyjar em tiltölulega sléttar að ofan
en geta þó verið með nokkm „lands-
lagi" og heitið íseyja er því réttnefni
enda var í fyrstu haldið að um
raunverulegar eyjar væri að ræða. Is-
eyjamar em langlífari en borgarís-
jakar, enda eru heimkynni þeirra
hagstæðari til varðveislu meðan þær
rekur um norðurheimskautssvæðið.
Alkurtna er að hafsvæði frjósa
seinna en stöðuvötn. Ástæðan er að
nokkru leyti sú að í ólagskiptum sjó
dreifist varminn niður á meira dýpi
en í stöðuvatni og að nokkru veldur
þessu selta sjávarins.
Gerð sjávaríss er breytileg eftir
ytri aðstæðum, svo sem seltu, hita-
stigi loftsins, vindi og hversu hröð
ísmyndunin verður. Allur sjávarís
myndast úr hreinum ískristöllum,
sem umlykja mikinn fjölda af smá-
holum sem í er saltlögur. Ef ísmynd-
unin er hröð verður tiltölulega mikið
af saltlegi í ísnum. Eftir því sem
meira frýs af vatninu í þessum
saltlegi verður vökvinn sem eftir er
sterkari. Hann verður um leið
eðlisþyngri og leitar niður úr ísnum,
bæði undan eigin þyngd og í átt til
hærra hitastigs. Þessar pækilrásir
má sjá ef að er gáð í hafísjökum sem
strandað hafa.
Seltuminnkunin í yfirborði sjávar-
íss verður hraðari við hærra hitastig
og mjög hröð þegar hitastigið nálg-
ast bræðslumark íssins. I íshrönnum
ofan á ársgömlum sjávarís er selta
orðin svo lítil að hann má bræða til
drykkjar. Þessa staðreynd færa leið-
angursmenn á sjávarís sér í nyt, en
lífsreynsla Eskimóa hafði fyrir langa
löngu kennt þeim þessi hagnýtu
fræði.
Seltumagn í nýmynduðum sjávar-
ís er annars mest háð lofthitanum
52
1