Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 28
Ævar Petersen 1998. íslenskir fuglar. Vaka-
Helgafell, Reykjavík.
Greinin er ennfremur byggð á munnlegum
skýrslum Ágústs Magnússonar skipstjóra
sem höfundur fékk í Neskaupstað og
Reykjavík á árunum 1983-1995.
Frá R.ITSTJÓRA
Grein þessa skrifaði Pétur Gautur Kristjáns-
son, lögmaður, á árinu 1996 en sendi hana til
Náttúrufræðingsins tveimur árum síðar. Af
ýmsum ástæðum dróst birting hennar úr
hömlu en höfundurinn lést í desember 1999.
Greinin er nú birt að höfðu samráði við son
Péturs, Gylfa Gaut Pétursson.
I greininni korna fram athyglisverðar
upplýsingar sem ekki hafa birst áður á
prenti. Pétur leiðir sterk rök að því að
villtar bjargdúfur verpi eða hafi orpið á
Austurlandi. Hann bendir réttilega á að
bjargdúfur/húsdúfur hafa ekki hlotið náð
fyrir augum þeirra sem samið hafa bækur
um íslenska fugla. Ýmsir fuglaskoðarar
hafa hins vegar búið yfir margvíslegri
vitneskju um dúfur á íslandi án þess að
deila þeirri vitneskju með þjóðinni. Einnig
má geta þess að dúfna er getið í ýmsum
óaðgengilegum heimildum og til dæmis
kemur fram í skýrslu Hins íslenska
náttúrufræðifélags að dúfur hafi lagst út
og orpið í Heimaey fyrir 1940. Þá var í
Fréttabréfi fuglaverndarfélagsins (nr. 17 í
febrúar 1996) skýrt frá dúfnavarpi á
Austurlandi. Loks hafa þeir Kristinn
Haukur Skarphéðinsson, Gunnlaugur
Pétursson og Jóhann Óli Hilmarsson
ljallað unt dúfur á Suðvesturlandi í Fjölriti
Náttúrufræðistofnunar (nr. 25, útg. í
febrúar 1994).
26