Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 41
2. mynd. Útbreiðsla rauðberjalyngs, Vaccinium vitis-idaea, á íslandi; rauðir punktar sýna
staðfesta fundarstaði, rauðir hringir slœðinga í skógrœktarreitum og bláir þríhyrningar
óstaðfesta fundarstaði. Náttúrufræðistofnun Islands 2000.
Berufjarðar (2. mynd). Svo virðist sem
lyngið sé talsvert að breiða úr sér á sumum
þeirra staða þar sem það hefur fundist.
Skýrist það væntanlega af minna beitarálagi
en áður var.
Eg hef skoðað rauðberjalyng á vaxtar-
stöðurn þess á Austurlandi og einkum
fylgst með viðgangi þess í Ormsstaðafjalli
í Breiðdal frá 1966 að telja. Öðru hverju á
þessu tímabili hafa þar myndast stöku
berjavísar á lynginu, fölgrænir eða nærri
hvítir, en ég hef ekki séð þá ná fullum þroska
fyiT en haustið 2000 og þá seinni hluta
september. 1 Reyðarfirði og á Fossárdal voru
rauðberin einnig vel þroskuð er leið á haustið
2000. A Fossárdal virðist einhver blómgun
nær árviss og þar fékkst metuppskera eitt sinn
á níunda áratug aldarinnar.
Rauðber hérlendis virðast vera á stærð
við krækiber; fullþroskuð eru berin rauð,
eins og nafnið segir til um, súr en ekki safarík
og þola vel geymslu. Hálfþroskuð ber eru
nánast tvílit, rauð sólarmegin en ljós á hitt
borðið. Rauðber eru víða nytjuð erlendis,
einkum til sultugerðar, og hér á landi hefur
um áratugi fengist innflutt gómsæt „týtu-
berjasulta“ í verslunum. í Breiðdal eystra og
á Fossárdal í Berufirði tíndu heimamenn
dálítið af rauðberjunt síðastliðið sumar til
sultugerðar og heyrt hef ég að þau hafi verið
nytjuð öðru hverju fyrr á 20. öldinni, m.a. á
Fossárdal. Rauðberjalyng og hálfþroskuð
ber hafa þar einnig verið notuð smávegis til
skreytinga.
Geta má þess að haustið 2000 fékk ég
ábendingu frá Þuríði Björnsdóttur, sem nú á
heima á Akureyri, þess efnis að rauðberja-
lyng kunni að vaxa innarlega í Steingríms-
firði á Ströndum, en þar átti Þuríður heirna í
æsku. Eftir er að ganga úr skugga um hvort
rétt reynist. Sigrún Steinsdóttir í Döluni í
Fáskrúðsfirði hefur einnig greint mér frá því
nýlega að hún og systur hennar telji sig hafa
fundið rauðberjalyng inni á Daladal. Félli sá
staður vel innan þekktra útbreiðslumarka
tegundarinnar á Austfjörðum. Vafalítið á
rauðberjalyng eftir að koma í leitirnar víðar á
landinu og gerðu menn rétt í að láta rann-
sóknastofnanir vita, telji þeir sig hafa rekist
á þennan sjaldgæfa kvist í íslenskri flóru.
39