Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 47
Lyne.)
sem ungar eru í honum,
og loks eru kvendýr
sumra pokadýra poka-
laus, til dæmis poka-
snjáldrurnar og ýmsar
posur í S-Ameríku og
maurapokinn í Ástralíu.
Pokadýr hafa frum-
stæðari heila en
fylgjudýr; til dærnis
vantar sem l'yrr segir í
hann hvelatengsl og
heilinn er allur rýrari,
stundum um helmingi
léttari en í jafnstóru
fylgjudýri. Þessa sjást
merki í hegðun pokadýra:
Þau gefa til dæmis frá sér
rnjög fábreytileg hljóð,
og hjarðdýr, svo sem
ýmsar kengúrur, virðast
ekki lúta stjórn neins
forystudýrs. Raunar
finnast vart merki félags-
hegðunar hjá poka-
dýrum, jregar undan eru
skilin samskipti karl- og
kvendýra um fengitíma.
Pokadýr eru afar
breytileg að stærð og
lögun. Algengt er að
afturlimir séu lengri en
framlimir. Pokamýs af
tegundinni Planigale ingrami verða ekki
nema um 10 cm langar - af því er rófan nærri
helmingur - og vega aðeins 5 grömm. Aftur
á móti verða uppréttar rauð- og grákengúrur
nærri tveir metrar á hæð, þriggja rnetra langar
frá trýni aftur á rófubrodd og allt að 90 kg.
Sum útdauð pokadýr voru enn stærri.
Pokafíll, Diprotodon optatum, var að vísu
hvorki jafnstór og fíll né líkur honum að
líkamsgerð en samt vænsta skepna, á stærð
við nashyrning eða um 4 m að lengd og 3 m
á herðakamb. Höfuðið eitt var nærri eins
metra langt. Pokafíllinn, sem var grasbítur,
lifði á meginlandi Ástralíu seint á jökultíma
og fram á nútíma. Afleifum íjarðlögum ráða
menn að hann hafi enn lifað þegar frum-
byggjar álfunnar námu þar land.
Upprun!
Elstu steingervingar, sem með vissu eru af
pokadýrum, eru frá Norður-Ameríku, meira
en 100 milljón ára, frá krít, síðasta tímabili
miðlífsaldar. Þá voru Ameríka, Antarktíka og
Ástralía hlutar sama meginlands. Sumir telja
að pokadýrin séu upprunnin í N-Ameríku og
hafi ferðast þaðan yfir S-Ameríku og
Antarktíku til Ástralíu. Aðrir hallast að því
að fyrstu pokadýrin hafi þróast í Ástralíu og
þaðan hafi leiðin legið í hina áttina, til
Ameríku.
Löngum var talið að pokadýrin hefðu í
aldanna rás látið í minni pokann fyrir fylgju-
dýrum í Evrópu og N-Ameríku en haldið
sínu í S-Ameríku og Eyjaálfu. En sennilega
hafa- pokadýrin aldrei verið til muna
45