Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 72

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 72
Þegar um prófanir eða mælingar er að ræða, þar sem markmiðið er að skila ákveðnum mæliniðurstöðum, má hins vegar skýrgreina vinnu, kostnað og aðra þætti líkt og gert er með verklegar framkvæmdir. Ég fæ ekki betur séð en þetta sé meginástæða þess að prófanir og mælingar eru flokkaðar af mörgum undir „hagnýtar rannsóknir", þótt þær teljist alls ekki með réttu til rannsókna, a.m.k. samkvæmt mínum skilningi á því orði eins og áður hefur komið fram. Rannsókn lýkur ekki með mælingum. Þegar mæliniðurstöður liggja fyrir þarf að túlka þær. Markmið rannsókna er að bæta við þekkingu, ekki að safna staðreyndum með mælingum eða öðrum aðferðum. Athuganir eða kannanir á ýmsum fyrir- bærum í náttúrunni eiga margt sameiginlegt með rannsóknum. Það er vegna þess að gögn eru ófullnægjandi til að skýrgreina megi tiltekna athugun nákvæmlega fyrir- fram. Hvernig á t.d. að gera óyggjandi áætlun um jarðhitaleit á svæði sem þar sem engan jarðhita er að finna, að ekki sé talað um árangurinn? Vissulega er unnt að gera áætlanir varðandi mannafla, kostnað og tíma við ákveðnar mælingar en þær segja ekkert til urn hver árangurinn verður, ólíkt því sem er t.d. við hönnun húsbyggingar. Að þessu leyti skarast rannsóknir og athuganir. Það réttlætir þó ekki að orðin rannsókn og athugun hafi óljósa merkingu. Rannsóknir í náttúruvísindum leiða mjög sjaldan til uppgötvunar nýrra lögmála. Yfirleitt er um að ræða aukna þekkingu á tilteknum ferlum eða á nýjum svæðum. Vinna við rannsóknir felur undantekninga- lítið í sér að safna saman þeirri vitneskju og þekkingu sem til er um rannsóknarefnið og bæta síðan við þekkinguna með nýjum gögnum og túlkun þeirra. ■ MANNAFLI Það er afgerandi munur á þeim mannafla sem þarf til rannsóknarverkefna annars vegar og til mælinga og prófana hins vegar. Rann- sóknir gera kröfu um að einstaklingurinn sýni frumkvæði og hafi til að bera sköpunar- gáfu. Þeir sem rannsóknir stunda eiga þannig margt skylt með rithöfundum og listamönnum. Það dugar ekki að kalla prófanir og mælingar rannsóknir, hvað þá hagnýtar rannsóknir, og ætlast til þess að áhugasamir einstaklingar, sem lokið hafa framhaldsnámi við háskóla, séu ánægðir með að fara í mælingarvinnu. Kunnátta þeirra nýtist heldur ekki vel við slíka vinnu. Ekki má skilja þessi orð mín svo að ég telji rannsóknir æðri mælingum eða prófunum. Öll þessi störf hafa vissulega sitt gildi og sinn tilgang. Málið er að allir einstaklingar leita að störfum við sitt hæfi, störfum sem eru áhugaverð en þó fyrst og fremst krefjandi, spennandi eða kalla á framtak. Árangurinn af hinni almennu skýrgreiningu á hagnýtum rannsóknum hér á landi er m.a. sá að fæla áhugasamt rannsóknarfólk úr landi, fólk sem gæti nýst þjóðinni mjög vel. Langflestir Islendingar sem ljúka fram- haldsnámi í náttúrufræðum gera það við erlenda háskóla. Rannsóknarverkefnin sem þeir velja sér mótast gjarnan af hinu erlenda umhverfi. Þegar heim er komið fer svo fyrir mörgum að þeir finna ekki áhugaverð störf og snúa aftur til útlanda. Þessu mætti breyta með því að láta aðstæður í íslensku þjóð- félagi móta meira verkefnavalið en nú er. ■ HVER ER AFSTAÐAN TIL GILDIS RANNSÓKNA? Afstaða almennings og valdhafa í hinum vestræna heimi til rannsókna í raunvísindum hefur breyst á undanförnum áratugum. Fyrir og eftir síðari heimsstyrjöldina var það viðhorf til rannsókna áberandi að setja nánast alla þá peninga í þær sem rann- sóknarmenn gátu eytt. Þetta viðhorf helgaðist líklegast af þeirri trú manna að rannsóknir væru það afl sem mestum framförum skilaði í efnahagslegu tilliti. Þá var rannsóknar- og tæknimönnum beitt fyrir vagn framfaranna. En á síðustu árum eða áratugum hefur dæmið snúist við. Ekki heyrist eins mikill jákvæður áróður fyrir rannsóknum, miklu oftar viðvörunarorð frá raunvísindamönnum. Hvatt hefur verið til 134
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.