Náttúrufræðingurinn - 1995, Qupperneq 38
4. mynd. Hólmadrangur, Hádegisdrangur, er í elsta hrauninu, Rauðölduhrauni. Hann var
eyktamark frá Hólmaseli, en þann 22. júlí 1783 „afbrann sú vœna og nýbyggða
Hólmskirkja “ í Skaftáreldum. Ljósm. Jón Jónsson.
vestur af Fljótum, en nú er hann horfinn.
Kann sá foss að hafa fallið fram af brún
hraunsins. Þetta sama hraun kemur svo
fram við Syðri-Steinsmýri og mun vera
undir rústum Gamlabæjar þar nokkru aust-
ar en er annars horfíð undir sand. Þetta
sýnir að Steinsmýrarbær eða -bœir hafa
fyrrum staðið austar en nú er en verið
fluttir, væntanlega undan ágangi vatna
og/eða sandfoks. Norðurmörk hraunsins
eru ekki þekkt, ekki heldur vitað hvað
langt það kann að ná inn undir byggð í
Meðallandi og því síður hvað langt það
nær til norðurs undir hraun það er Land-
brotsbyggð stendur á. Bergið í þessu
hrauni er, það séð verður bæði í handsýni
og í smásjá, eins og í Skaftáreldahrauni.
Þess vegna taldi ég verjandi að nefna það
Skaftáreldahraun hið fyrsta, en einnig
vegna þess að nú er ljóst að þrisvar sinnum
hefur gosið á þeirri sömu gosrein eftir að
land varð jökullaust þar efra (Jón Jónsson
1994). Um aldur hraunsins er það eitt nú
hægt að segja að það er mjög gamalt, gæti
vel verið meira en 8000 ára.
Næsta hraun er það sem hér kemur
aðallega við sögu og kennt hefur verið við
Landbrot en einnig Eldgjá. Ofan af
hálendinu hefur það komið um Skaftár-
gljúfur og breiðst út yfir láglendið allt frá
Kúðafljóti til Landbrotsvatna og því yfir
verulega stærra svæði en Skaftáreldahraun.
Sá hluti þess sem að Meðallandi snýr er
yfirleitt mishæðalítill og endar víða í hárri,
brattri brún, jafnvel með hömrum, eins og
t.d. vestur af Botnum. Þar skerast inn í það
djúp, hömrum girt vik. Undir þeim hömr-
um má sums staðar sjá undirlag hraunsins,
sem reynst hefur vera sandur, rauð-
brenndur hið næsta hrauninu og án gróður-
leifa. Auðsætt er að sandurinn er fram-
burður straumvatna. Eitt þessara vika er
vatni fyllt, Fljótsbotn, alldjúpt stöðuvatn.
Sem stöðuvatn hefur það orðið til við það
að Skaftáreldahraun lokaði vikinu að aust-
an, en í því voru upptök Botnafljóts og því
hefur nafnið haldist. Fleiri svona hamra-
kvíar hafa verið inn í hraunið austar (5.
mynd). Samkvæmt korti Sæmundar Hólm
frá 1784 stóðu bæirnir Hólmar og Hólma-
36