Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 47

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 47
13. mynd. Ófœrugil. Hér hefur'ein af kvíslum Skaftár runnið öldum saman og grafið djúpt gil langt inn í hraunið. Nafnið bendir til þess að á þessi hafi þótt ill yfirferðar. Ljósm. Jón Jónsson. Steinsmýrarfljót. Svo virðist sem öll þessi vatnsföll hafi fyrir eld runnið ofan á hraun- inu. Skaftá sjálf rann austur með Síðu- fjöllum, en þó nokkuð úti á hrauninu, því milli hennar og fjalls reis hin fyrsta byggð þegar þar var komið sögu. Meginfarvegur- inn var á hrauninu norðan við Skálarstapa og stefndi þaðan rétt sunnan við Dalbæjar- stapa en þaðan austur og suður Landbrot og út af hrauninu skammt vestur af Segl- búðum, í Tröllshyl. Á þeirri leið hafði hún náð að skiptast í fjölda smákvísla og mynda leirur hér og þar um hraunið, en nú eru það mest grónar sléttur. Eitt dæmi um slíkt er Mjóaleira í landi Hátúna, og helst þar nafnið enn. Ofan við Tröllshyl er farvegurinn 120 m breiður rétt áður en hið forna jökulfljót steyptist fram af brúninni með gný og iðuköstum og gróf sér þá „fimbulgröf1 sem Tröllshylur heitir (12. mynd) og enn má skoða en hann og um- hverfi hans er einn sérkennilegasti staður- inn í Landbroti. Nú ríkir kyrrð í dalnum litla sem áin mikla skóp því fossinn er dauður. Uppi við rönd Eldhrauns skammt austan Dalbæjarstapa hverfur stór farvegur inn undir það, hinn forni farvegur Skaftár. Lítið eitt austar greindist farvegurinn, enda heitir það svæði, á korti Sæmundar Hólm, Skaftáreyrar. Ármannskvísl er nú lítill lækur í stórum farvegi sem kemur í Skaftá gegnt Systrastapa. Auðsætt er að þar hefur áður mikið vatn runnið, fossbrún og leifar af hyl má þar enn sjá og í Kvíslarbotnum er Kvíslardrangur, klettur sem vatn hefur sópað öllu lauslegu frá og stendur nú einn í þurrum farvegi. Þegar nokkru austar kemur hafa farvegir að mestu horfið í foksand en vel mótar þar fyrir fornum leirum austur að Tungulæk. Hann kemur að hluta til undan Eldhrauni en að hluta út úr gjallhólum austan undir því. Svo rennur hann á hrauni, skiptist um stóran hólma, sem Þórarinshólmi heitir, en fellur loks í Tungufossi niður í allmikið gil og svo í Skaftá við Stakháls. Skammt fyrir neðan fossinn er Árnavað á læknum. Lítið eitt norðar kemur Krummagil t.v., en það er gamall farvegur. Skammt þar suður af og vestan við Fosshól er dálítil slétta, en sé gengið nokkuð harkalega um hana tekur ur.dir á sérkennilegan hátt. Þar mun hellir, og varla mjög lítill, vera undir. Um Ófæru- gil milli Kársstaða og Hátúna (13. mynd) 45
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.