Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 31
emn leiðangursmanna, Ferdinand
Bernauer, að jarðeldabelti íslands hafi
myndast við það, að basalthellan hafi
nfnað vegna uppstreymis bergkviku.
Honum reiknaðist til, samkvæmt mæl-
mgum á hinu nú svo umtalaða Gjá-
stykki (8. mynd), að þar hafi gliðnunin
numið að meðaltali rúmum cm á ári
síðustu 10.000 árin. Og hann er svo for-
sjáll að nefna, að ekki sé útilokað, að
þessi gliðnun verði í rykkjum. Þetta átti
allt eftir að koma á daginn í Kröflueld-
um.
Heimsstyrjöldin önnur og afleiðingar
hennar komu í veg fyrir að lengdar-
mælingar Þjóðverjanna yröu endur-
teknar á tilsettum tíma. Þær drógust
aratugi. Þeir voru orðnir tiltölulega fáir,
jarðvísindamennirnir, er létu sig
Wegenerkenninguna einhverju varða,
er jarðeðlisfræðilegar rannsóknir, eink-
um mælingar á segulstefnum í gosbergi
og könnun á botni úthafanna, tóku að
vekja hana upp í nýrri mynd á sjötta
aratug aldarinnar.
I ljósi þess, er áður var getið, að
kenning Wegeners var kveðin niður á
raðstefnu jarðvísindamanna í New
Yorkborg í nóvember 1926, má það
teljast glettni örlaganna, að á hliðstæðri
raðstefnu i sömu borg réttum fjórum
aratugum síðar, í nóvember 1966, fékk
Wegener það sem kalla má uppreisn
æru. A þessari ráðstefnu, sem haldin var
á vegum Goddard geimferðastofnunar-
mnar, komu fram hver af öðrum
fremstu boðberar nýrrar kenningar um
rek landsvæða og hafsbotna og færðu
slík rök fyrir máli sínu, að flestir áheyr-
endur létu sannfærast. Á ársfundi
Bandaríska jarðfræðifélagsins síðar í
sama mánuði og ársfundi amerískra
jarðeðlisfræðinga í aprílmánuði sama
vetur var enn hnykkt á þessu og síðan
eiga hinar nýju rekkenningar andmæl-
endur fáa og hvergi ákafari áhangendur
og boðbera en einmitt í Norður—
Ameríku. En um þessar kenningar, sem
varpa nú ljóma á aldarminningu Alfred
Wegeners, fjallar Sigurður Steinþórsson
jarðfræðingur í grein hér á eftir.
SUMMARY
Alfred Wegener — Centennial
I. The man and his work
by Sigurdur Thorarinsson Deþartment of Geology,
University of Iceland, Reykjavík
The paper deals with the life and work of
Alfred Lothar Wegener (1880—1930) with
main emphasis on his theory of continental
drift. The influence of his ideas on studies of
fissure systems in Iceland in the 1920ies and
1930ies is also dealt with. Those interested in
Wegeners biography are referred to M.
Schwarzbach 1980.
NOKKRAR HEIMILDIR
Jakobshagen, V. o. fl. 1980. Alfred Wegener
1880—1930. Leben und Werk. Ausstell-
ung anlászlich der 100. Wiederkehr
seines Geburtjahres. Dietrich Reimer
Verlag, Berlin. 60 bls.
Jónsson, Jón frá Laug 1931. Er próf. Wegener i
hættu staddur? (Prentað á kostnað höf.),
Reykjavík. 16 bls.
Koch,J. P. 1913. Gennem den hvide Örken.
Gyldendals Boghandel, Köbenhavn. 286
bls.
25