Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 47
sjávarfjöllum til NV, yfir 2000 km
langa. Aldursákvarðanir sýna, að elstu
eyjarnar eru hinar vestustu, og almennt
yngjast þær i átt til Hawaii — skýringin
er sú, að Kyrrahafsflekann „rekur yfir“
svonefndan heitan reit, sem stendur rót-
fastur þar sem Hawaii er. A heita reitn-
um er jafnan eldvirkni, og há fjöll hlað-
ast upp á hafsbotninum, en síðan berast
þau til NV sitjandi á flekanum, og eld-
virknin kulnar út og ný myndast á þeim
stað, sem nú er á heita reitnum. Þannig
hefur þetta gengið þarna í 40 milljón ár,
en Midway-atoll, vesturendi Hawaii-
keðjunnar, stendur einmitt á 40 milljón
ára gömlum bergsökkli. Hryggir sem
þessir nefnast „dauðir hryggir“ til að-
greiningar frá hinum skjálftavirku mið-
hafshryggjum. Menn telja sig nú þekkja
20—30 heita reiti á jörðinni: Hawaii er
einn þeirra, ísland annar, Galapagos-
eyjar hinn þriðji, og Azoreyjar hinn
fjórði. Tuzo Wilson (1965a, b), sem áður
var nefndur, benti á það fyrir löngu, að
hina dauðu hryggi, sem liggja eins og
þykkildi á jarðskorpunni út frá heitu
reitunum, mætti nota til að rekja hreyf-
ingar jarðskorpunnar miðað við jarð-
möttulinn. Þannig sýnir Hawaii-klas-
inn, eins og áður sagði, að Kyrrahafs-
flekann hafi rekið til NV yfir þennan
heita reit í 40 milljón ár, en þar á undan
hafði hann aðra stefnu og norðlægari,
eins og sést af framhaldi keðjunnar frá
Midway-atoll til Emperor-seamount,
sem er langleiðina norður við Aljúta-
eyjar. Heitir reitir eru, eins og nafnið
bendir til, og óháð þvi hvaða skoðanir
menn kunna að gera sér um tilurð
þeirra, staðir, sem standa hátt yfir um-
hverfi sitt, og þar sem eldvirkni er til-
tölulega mikil. Hins vegar bendir sitt-
hvað til þess, að undir heitu reitunum
rísi heitt möttulefni af mörg hundruð
km dýpi — það heita möttulstrókar.
I augum hinna fyrstu landreks-
manna, og raunar allar götur fram til
1968 eða 1970, virtist ísland falla illa að
þessu kerfi. Jarðfræði landsins virtist of
flókin fyrir svo einfalda mynd. En nýjar
rannsóknir og túlkanir hafa gerbreytt
þessu sjónarmiöi, og jarðfræði Islands
telst nú snar Joáttur í kerfi miðhafs-
hryggja, skorpufleka, heitra reita og
möttulstróka, og ýmsir Jaættir jarðfræði
Islands, sem áður virtust hver öðrum
óskyldir, og hver um sig [Dörfnuðust sér-
stakrar skýringar, ef þeir höfðu [tá
nokkra, falla náttúrlega hver á sinn stað
í hinni nýju rnynd. Með flekakenning-
unni hefur endurtekið sig gamla sagan:
þykkni af staðreyndum hefur verið fellt i
heilsteypt kerfi, sem ekki einasta skýrir
tengsl jtess, sem áður var vitað, heldur
vísar veginn til nýrra rannsókna.
En áður en lengra er haldiö þarf að
segja fáein orð um þau ferli, sem jarð-
skorpuhreyfingum valda, en það var
einmitt sá Jjáttur málsins, sem varð
landrekskenningu Wegeners að falli.
Aflvaki jarðskorpuhreyfinga er sá
varmi, sem myndast í iðrum jarðar við
klofnun geislavirkra efna. Varminn
streymir til yfirborðsins, sem er kalt eins
og menn vita. Þegar jafnmikill varmi
tapast við yfirborðið og myndast hið
innra, ríkir jafnvægi. Berg er lélegur
varmaleiðari, en hitamyndun í jörðinni
virðist vera meiri en svo, að geislun og
leiðni megni að veita varmanum út.
Þess vegna hefur hitastig jarðmöttulsins
náð því marki, að efnið taki að ólga eins
og grautur í potti, og iðustraumar taki
við og beri varmann til yfirborðsins.
Þessar hreyfingar eru griðarhægar, 1 cm
á ári eða svo, en það er þessi hreyfing
41