Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 54
unni, skríða þar um og sía lífræn úr-
gangsefni og gerla úr henni, en önnur
lifa ofan á botninum, skríða oftast á
gróðri og skrapa ýmsar lífrænar Ieifar
eða kísilþörunga af yfirborði hans.
VATNAFLÓALEIFAR f SETLÖG-
UM
Alllangt er síðan menn veittu því at-
hygli, að sumir líkamshlutar vatnaflóa
BOLSKJÖLDUR HÖFUÐSKJÖLDUR
1. mynd.
Kúlufló (Chydorus sfihaericus) séö frá hlið og
framan frá. Teiknað eftir D. G. Frey.
Chydorus sphaericus, side view (above) and
frontal view (below). Redrawn from D. G. Frey.
virðast ekki rotna eftir að dýrin drepast.
Aðallega eru þetta bolskildir og höfuð-
skildir kúluflóar- og ranaflóarættanna.
Afturbolir þessara dýra varðveitast
einnig. Af halaflóm og glerflóm verða
eftir klær og stundum söðulhýði, en
ekkert varðveitist af tegundum af
broddflóarætt.
Mergð vatnaflóa er mikil í vötnum,
og hvert dýr hefur um 30—40 hamskipti
á ævi. Mikið er því af líkamshlutum
vatnaflóa í leðju vatnanna, og í Mý-
vatni eru t. d. um 11.000 slíkar leifar í
hverjum rúmsentimetra af leðju (Árni
Einarsson 1981). Aðalatriðið er þó, að
unnt er að greina flesta líkamshlutana
til tegunda. Á það einkum við um
kúluflóarættina.
Fyrir um 20 árum var lagður grund-
völlur að greiningu líkamshluta vatna-
flóa úr vatnaseti (sbr. Frey 1976). Menn
höfðu einkum áhuga á að kanna sögu
vatnanna, og voru í því skyni teknir
borkjarnar úr leðjunni og athugaðar
breytingar á hlutföllum vatnaflóateg-
unda í tímans rás. Á síðari árum hefur
grundvöllur þessara fræða verið styrkt-
ur verulega með rannsóknum á
lifnaðarháttum vatnaflónna.
Allmikið er nú vitað um sögu vatna-
flóasamfélaga i Evrópu og N-Ameríku
eftir að ísöld lauk. Hérlendis hef ég rakið
sögu vatnaflóasamfélaga rúm 2000 ár
aftur í tímann í Mývatni (Árni Einars-
son 1981) og aftur til ísaldarloka í
Vatnskotsvatni á Hegranesi i Skagafirði
(Árni Einarsson, í undirbúningi). Á hinn
bóginn er ákaflega litið vitað um
vatnaflær á hlýskeiðum ísaldar. Nokkrir
höfundar geta um staka líkamshluta,
einkum stóra og áberandi t. d. söðulhýði
(sbr. Frey 1964). Frey (1962) athugaði
sögu vatnaflóasamfélags í setlögum frá
48