Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 61

Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 61
aðalfundur Aðalfundur fyrir árið 1980 var haldinn laugardaginn 7. mars 1981 i stofu 102 í Lögbergi við Suðurgötu í Reykjavík. 17 fé- lagar sóttu fundinn. Fundarstjóri var kosinn Eyþór Einarsson og fundarritari Axel Kaaber. Fundarstjóri setti fundinn og fékk sam- þykki fundarmanna fyrir því afbrigði frá lögum félagsins að halda aðalfund nú í mars, en ekki í febrúar eins og lög félagsins kveða á um. Formaður minntist látinna félaga og flutti skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári. Síðan las gjaldkeri upp reikninga félagsins og voru þeir samþykktir. Umræða varð um útgáfu Náttúrufræð- ingsins og bágan fjárhag félagsins, sem staf- aði af háum útgáfukostnaði. Töldu fundar- menn æskilegast að halda Náttúrufræð- ingnum í kringum 200 bls. pr. árgang, en fyrirsjáanlega fer 50. árgangur nokkuð fram úr því. Ur stjórn áttu að ganga Sólmundur Einarsson varaformaður og Ingólfur Einars- son gjaldkeri. Ingólfur gaf kost á sér til endurkjörs og var hann endurkjörinn. Sól- mundur gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Axel Kaaber kjörinn í hans stað. Stjórn- in skiptir síðan með sér verkum eins og lög félagsins segja fyrir um. 1 varastjórn voru endurkjörnir þeir Bergþór Jóhannsson og Einar B. Pálsson. Endurskoðendur voru endurkjörnir þeir Magnús Arnason og Tómás Helgason. Gestur Guðfinnsson var endurkjö'rinn varaendurskoðandi. Stjórnin flutti tillögu um hækkun félags- gjalds úr gkr. 5000 í nýkr. 120, en tillaga kom frá fundarmönnum um að hækka félags- gjaldið í 150 kr. og var hún samþykkt. Á fundinum rifjaði Sigurður Pétursson gerlafræðingur upp sögu Náttúrufræðings- ins og vék í leiðinni að hlutverki Hins ís- Ienska náttúrufræðifélags eins og það er skilgreint í lögum þess. Ræðumaður minnti sérstaklega á 3. grein félagslaganna |rar sem segir að félagið skuli stuðla að vexti og við- gangi Náttúrugripasafnsins. Það er nú í varöveislu Náttúrufræðistofnunar fslands. Taldi ræðumaður að félagið ætti að beita sér fyrir þvi, að gamalt loforð stjórnvalda um hús fyrir safnið yrði efnt, ella yrði þessi klausa strikuð út úr félagslögunum. Þá minntist ræðumaður á fræðsluhlutverk Náttúrufræðifélagsins, taldi þvi ekki sinnt sem skildi nema til kæmi útgáfa bóka um náttúrufræðileg efni, hliðstæð Bókmennta- félaginu. Var gerður góður rómur að erindi Sigurðar en sitt sýndist hverjum um hversu langt skildi gengið með að framfylgja hug- myndum hans. Varðandi fyrra atriðið hét stjórnin þvi að styðja eftir mætti viðleitni Náttúrufræðistofnunar til að koma safninu i viðunandi húsnæði með rúmgóðum sýn- ingarsölum, án þess þó að hafa þar frum- kvæði, eða gripa fram í mál sem þegar væri komið á rekspöl. Stjórnin taldi að margt þyrfti að athuga, áður en ráðist yrði i bóka- útgáfu i stærri stíl en nú er. FRÆÐSLUSAMKOMUR Á árinu voru eins og fyrr haldnar sex fræðslusamkomur, allar í Árnagarði við Suðurgötu, stofu 201. Á samkomum þessum voru haldnir fyrirlestrar um hin margvísleg- ustu náttúrufræðileg efni. Umræður urðu um öll erindi og oft hinar fjörugustu. Aðsókn að fyrirlestrunum var yfirleitt góð. Flestir komu 140 en fæstir 30. Samkomugestir voru alls um 290. Fyrirlesarar og efni fyrirlestra var sem hér segir: 28. janúar: Fyrirlesari: Jón Jónsson jarðfræðingur. Efni: Um jarðfræði Reykjanesskaga. 25. febrúar: Fyrirlesari: Hjalti Fransson, jarðfræðing- ur. Efni: Jarðfræði Hafnarfjalls og Skarðs- heiðar. 31. mars: Fyrirlesari: Hjörleifur Guttormsson líf- fræðingur. Efni: Frá Eyjabökkum til Kringilsárrana, lifríki og landmótun. 28. aþríl: Fyrirlesarar: Kristján Sæmundsson jarð- fræðingur og Guðmundur Pálmason jarð- 55
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.