Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 3

Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 3
Már Vilhjálmsson og Leifur A. Símonarson: För eftir lífverur INNGANGUR Rannsóknir á förum og sporum af líf- rænum toga (lífförum) beinast aö hvers kyns ummerkjum, sem hafa orðið til við starfsemi dýra eða plantna, og er sjálf- stæð grein innan jarðfræðinnar. Förin eru greind eftir útliti og gerð (t.d. set- gerð), en ekki eftir því hvaða lífvera myndaði þau. Förin veita sjaldan upplýsingar um út- lit lífveranna, sem skildu þau eftir sig. Hins vegar fáum við nokkra vitneskju um hegðun þeirra, en hún er háð um- hverfisaðstæðum. Myndun flestra fara er bundin ákveðnum umhverfum. Sum verða til í lágorkuumhverfum, en önnur þar sem orka er meiri. Botngerð, fæðu- magn, stöðugleiki umhverfis, setmynd- unarhraði og ýmsir aðrir þættir ráða hér mestu. Hins vegar virðist hitastig ekki hafa eins mikil áhrif á dreifingu faranna, og bendir það til þess að lífverur með mismunandi hitaþol skilji eftir sig eins eða svipuð för. Þrátt fyrir samanburð á förum úr jarð- lögum og förum núlifandi dýra, er sjald- an hægt að heimfæra ákveðna gerð fara til ákveðinnar tegundar. Það hefur þó oft verið reynt, en komið hefur í ljós að ein og sama tegundin getur myndað margs konar för og einnig að ákveðin gerð fara er oft mynduð af ólíkum og óskyldum dýrum (Bromley og Fursich 1980). Samt sem áður geta förin veitt okkur ýmsar upplýsingar, sem „venjulegir" steingerv- ingar geta ekki gefið. Flestar gerðir fara finnast í mjög mis- gömlum jarðlögum. Margar eiga upphaf sitt að rekja aftur á forkambríum eða um og yfir 600 milljón ár aftur í tímann. För eftir fornar lífverur er því ekki hægt að nota á sama hátt og einkennissteingerv- inga, en þeir eru bundnir við stutt tíma- skeið og finnist þeir í jarðlögum segja þeir til um aldur þeirra. í umfjöllun um för og spor af lífrænum toga er eingöngu flokkað í ættkvíslir og tegundir. Skipting í hærri einingar eins og ættir, ættbálka, flokka og fylkingar er erfið, þar sem flokkunin byggir eingöngu á útliti og gerð fara eða spora. Þá er sjaldan skipað í lægri einingar; undirætt- kvíslir, undirtegundir eða afbrigði. För og spor eftir lífverur eru því ekki greind eftir hugsanlegum skyldleika lífveranna, sem myndaði þau, heldur er lögð áhersla á að skilja eðli og gerð faranna. SÖGULEGT YFIRLIT Rannsóknir á förum og sporum eftir lífverur hófust á nítjándu öld, en það er þó fyrst á tveim síðustu áratugunum að þær hafa hlotið það sem kalla má al- menna viðurkenningu. Osgood (1970) skipti rannsóknarsög- unni í þrjá hluta og nefndi þann fyrsta Náttúrufræðingurinn 57 (3), bls. 97-113, 1987 97

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.