Náttúrufræðingurinn - 1987, Blaðsíða 31
1
4
9. mynd. Lax á mismunandi kynþroskastigi. (Mynd úr Anon. 1983). - Maturation stages of
salmon.
Tvær hrygnur voru á 5.-6. stigi (tilbún-
ar til hrygningar) en það verður að telj-
ast mjög óvenjulegt á þessum stað og
árstíma. Þrjár hrygnur voru á 7.-2. stigi
(þ.e. nýbúnar að ,,buna“). Þetta kom
mér einnig í opna skjöldu því hingað til
hef ég ekki heyrt þess getið að laxinn
„buni“ í úthafinu. Þeir laxar sem svona
var ástatt um voru mjög mjóslegnir.
Þegar ég sá þessa fiska í veiðiferðinni
minntist ég þess að ég hafði einnig séð
þá er verið var að landa úr Hvítakletti
og voru þeir þá settir til hliðar. Ratvísi
þessara laxa hefur ekki verið upp á það
besta, hvort sem það er af mannavöld-
um eða ekki. Er kannski hugsanlegt að
hér sé um að kenna blöndun laxastofna
og flutningi seiða milli landshluta og
jafnvel flutningi milli landa? Það er
augljóst að laxinn bunar í hafinu og
sýnist mér að full ástæða sé til frekari
rannsókna á allri vistfræði hans þar.
FÆÐA
Laxinn var yfirleitt feitur og mörvað-
ur í kvið. Við skoðun á magainnihaldi
fundust eftirfarandi dýr og dýrahópar
nokkurn veginn í röð eftir mikilvægi:
laxsfldar (Myctophidae), ljósáta (Eup-
hausiacea), geirsfli (Paralepididae), ís-
rækja (Hymenodora spp.), smokk-
fiskur (Cephalopoda), kolmunni
{Micromesistius poutassou), marfló
(Amphipoda) og karfi (Sebastes mar-
inus).
LOKAORÐ
Eins og getið var um í inngangi þá
var sú ferð sem hér var sagt frá farin á
vegum Veiðimálastofununarinnar,
frumgögnin liggja þar og einnig í Fiski-
rannsóknastovan í Færeyjum. Að lok-
um þakka ég kollega mínum Ólafi S.
Ástþórssyni fyrir holl ráð við samningu
þessa pistils.
125