Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1987, Qupperneq 10

Náttúrufræðingurinn - 1987, Qupperneq 10
4. Skriðför (repichnia) eru samfelldar slóðir eða spor á eða við yfirborð setsins. Þessar slóðir geta verið í beinni línu eða hlykkjóttar, litlar eða stórar (7. mynd, nr. 3). Förin eru gerð af dýrum, sem ferðast um, og því er setið í förunum sömu gerðar og í viðkomandi umhverfi. Dæmi um för af þessu tagi eru fótspor risaeðlanna í Connecticut River Valley í Bandaríkjunum. För margra ránsnigla eru einnig af þessari gerð. 5. Beitarför (pasichnia) eru yfirleitt óskiptar rákir eða holur á yfirborði botns. Rákirnar eru hlykkjóttar eða snúnar og oftast skerast þær ekki og byggist allt á því að nýta plássið sem best, því að oft er hörð samkeppni um fæðuna. Beitarför eru gerð af dýrum, sem hreinsa lífræn efni af hörðum botni. Dæmi um slík för eru skrapmerki eftir ýmsa hettu- snigla og ígulker. 6. Flóttaför (fugichnia) standa yfirleitt þvert á lagskiptingu setsins. Setið í för- unum er sömu gerðar og setið í umhverf- inu, en oft sjást V-laga merki í förunum og snúa þau ýmist upp eða niður allt eftir hreyfistefnu dýrsins. Ýmsar óskyldar tegundir geta myndað svona för, og stærð þeirra getur verið frá fáeinum sentimetrum og upp í nokkra metra (7. mynd, nr. 1). 7. Búskaparför (agrichnia) eru graf- gangakerfi, þar sem sameinuð er lang- tíma dvöl og fæðuöflun, ef til vill í formi búskapar eða gildrugerðar, en nafnið agrichnia er einmitt dregið af latneska orðinu agricola, sem þýðir bóndi. Til þessara fara teljast för úr flóknum lárétt- um göngum, sem eru ýmist bugðótt, eins og tvöfaldir sívafningar, eða sexhyrnd rör, er mynda samfellt net. Seilacher (1977) taldi að þessi flóknu gangakerfi væru gerð af litlum lífverum, sem sam- einuðu fæðuöflun og dvöl. Ferðuðust þær fram og aftur eftir göngunum og söfnuðu litlum botndýrum og bakter- íum, sem annað hvort dvöldust sjálfar í göngunum, eða féllu niður í þau. För þessi finnast einkum í fínkornóttu seti mynduðu á miklu dýpi í rólegu umhverfi. Þau eru þekkt í fornum jarðlögum, jafnt og jarðmyndunum frá nútíma. Ekki er vitað hvaða lífverur mynda þessi för nú á tímum. VISTFRÆÐILEG FLOKKUN Rannsóknir á förum og sporum af líf- rænum toga hafa tvímælalaust gildi fyrir vistfræðilegar túlkanir á fornum set- umhverfum. Seilacher (1964, 1967) not- aði hugtakið farásýnd (ichnofacies) og benti á, að ákveðin för eru einkennandi í ákveðnum setumhverfum eða dýptar- beltum. Mjúkum hafsbotni má skipta í fjórar slíkar ásýndir, sem hér eru taldar í átt að aukinni hafdýpt; Skolithos-, Cruziana-, Zoophycos- og Nereites- ásýndir (8. mynd). Fimmta ásýndin, sem einnig finnst á mjúkum botni, er nefnd Scoyenia og hefur eingöngu fundist í ferskvatnsseti. í hálfhörðnuðu seti finn- ast för, sem einkenna Glossifungites- ásýndina, og á hörðum botni finnast för, sem eru einkennandi fyrir Trypanites- ásýnd. Nýlega var bætt við þessa skipt- ingu Teredolites- ásýndinni, sem ein- göngu finnst á eða í viði, t.d. rekaviði. Nafnið er frekar óheppilegt því að það er dregið af nafni timburmaðka (Teredo), en aðrar tegundir geta einnig myndað för af svipaðri gerð. 1. Skolithos-ásýnd Þessi ásýnd er einkennandi fyrir fjöru- beltið, þar sem botn er óstöðugur og orka mikil. Setlög mynduð í slíku um- hverfi eru gerð úr víxl- og skálöguðum sandsteini, oft allgrófum. För, sem þar finnast, eru aðallega dvalarför, svo sem einfaldar lóðréttar pípur (Skolithos), U- laga lóðrétt rör (Diplocraterion), o.s.frv. Einnig finnast stundum skriðför, t.d. eft- 104
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.