Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 53

Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 53
2. tafla. Nýting ljósorku í prósentum. (James 1963). - Partition of light energy falling upon the leafofa land plant in % (James 1963). Tillífun 1 (Light fixed by photosynthesis) Endurkast + geislun til jarðar 30 (Light reflected or passing through leaf) Uppgufun vatns 49 (Heat absorbed by transpiration) Hitageislun frá gróðri 20 (Heat radiated into atmosphere) Samtals (Total) 100 hins vegar því sem næst hinn sami bæði árin á aðalsprettutímanum, sem stóð í um 8 vikur. Var hann um 140 kg/ha/dag af þurrefni og er það sambærilegt við það, sem gerist um afkastamikinn gróð- ur annars staðar, sjá 3. töflu. Skamm- tímameðaltalið 200, sem gefið er í töfl- unni, er ágiskunartala. Ef miðað er við að ljósgeislun hafi verið 420 kal/cm2/dag hefur nettógeislanýting verið 1,5%. Gert er ráð fyrir að orkumagn í grasi sé 4500 kal/g þurrefnis, en það er nokkru meira en í áður tilvitnaðri heimild eftir Mac Key. Miðað við að þriðjungur tillífaðrar orku hafi farið í öndun og fimmtungur vaxtar í rætur verður brúttónýting geisla- Þurrefni, tonn/ha orkunnar 2,8%, sem verður að teljast á- gæt nýting. ORKA í HEYI Samkvæmt nýlegum mælingum er brúttóorka í þurrefni í íslensku heyi 4300-4500 kal/g eða 18,0-18,8 MJ/kg (Mundell & Tryggvi Eiríksson 1980), sjá 4. töflu. Breytileikinn mun einkum vera vegna mismunandi öskuinnihalds, sem er oft 8-12%. Orka í viði er svipuð, enda er lítill munur á lífrænum efnum í trén- uðu grasi og viði. í góðum mó getur ork- an einnig verið svipuð reiknað á þyngd- areiningu, þrátt fyrir orkumeiri lífræn efni, vegna þess að hann er öskuríkari. \ \ \ 1. mynd. Vikulegar uppskeru- mælingar á vallarfoxgrasi á Korpu, 1979 og 1980. - Crop (tonnes dry matter Iha) of Phleum pratense in Reykjavík, 1979 and 1980. 147

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.