Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 7
3. mynd. Pálmi Hannesson (1898-1956)
stundaði nám í náttúrufræðum við Kaup-
mannahafnarháskóla 1918-1926 með
áherslu á dýrafræði og lauk þaðan magist-
ersprófi. Hann var kennari og rektor
Menntaskólans í Reykjavík frá 1930 til
dauðadags. Hann ferðaðist mikið um
landið á sumrin og ritaði mikið um ferða-
lög sín og íslenska náttúru. Pálmi Hannes-
son, the headmaster of the Reykjavík
Grammar School and naturalist, travelled
through Iceland and wrote on the natural
history of the country for many years.
(ljósm. photo. ?)
4. mynd. Sigurður Thoroddsen (1902-
1983) stundaði nám við Polyteknisk Lær-
eanstalt í Kaupmannahöfn 1920-1927 og
lauk þaðan verkfræðiprófi. Hann stofnaði
og rak Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen í Reykjavík frá 1931. Hann fékkst við
ýmis verkfræðileg viðfangsefni en einkum
vatnsaflsvirkjanir. Hann sat um skeið á
Alþingi. Sigurður Thoroddsen, civil engin-
eer and the director of a civil engineering
laboratory, specialized in hydroelectric
power plant engineering. (ljósm. photo. ?)
hans að jarðfræði, og réð ferð hans
með Bjerring Pedersen þar áreiðan-
lega tímamótum, svo að jarðfræði og
landafræði voru síðan megin viðfangs-
efni hans. (Þýð.)).
Þeir höfðu 11 hesta, 6 til reiðar, 4
undir klyfjum og einn til vara. Aðal-
stöðvar þeirra voru í Hvítárnesi, hjá
Blautukvísl og undir Arnarfelli inu
mikla. Hófu þeir rannsóknir vestast á
svæðinu en fluttu sig austar eftir því
sem á leið. Ferðin sóttist þeim vel, en
jökulkvíslarnar undan Hofsjökli ollu
þeim þó nokkrum erfiðleikum sökum
vatnavaxta.
í skýrslunni um leiðangurinn er
jarð- og landfræði rannsóknanna skipt
í eftirfarandi þætti:
1) . Gert var jarðfræðikort af svæð-
inu, þar sem sýnd var útbreiðsla mó-
bergs, grágrýtis, nútímahrauna og
líparíts í samræmi við skilgreiningu
Þorvaldar Thoroddsens.
2) . Kannaðar eldstöðvar. Fundu
125