Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 12
að Nielsen hafði allt þetta mjög í
huga, þegar hann í heimalandi sínu
Danmörku, hóf að kanna sandhóla,
merskiland og sjávarleirur ásamt upp-
blæstri í hinum létta lausa jarðvegi á
Vestur-Jótlandi.
ÞRIÐJI DANSK-ÍSLENSKI
LEIÐANGURINN, 1934.
Laugardaginn fyrir páska, 31. mars
1934, hófst gos í Grímsvötnum í
Vatnajökli. Síðla sama dag fékk dr.
Nielsen fregnir um það til Kaup-
mannahafnar, og 7. apríl lagði hann af
stað til íslands þeirra erinda að kanna
eldgosið. í för með honum var Keld
Milthers magister, síðar ríkisjarðfræð-
ingur. Þeir fóru yfir England og komu
til íslands að kvöldi hins 15. apríl. Þeir
lögðu af stað frá Reykjavík 18. apríl
og voru komnir með farangur sinn
austur að Kálfafelli í Fljótshverfi að-
faranótt 24. aprfl, þar sem Stefán Þor-
valdsson bóndi og fólk hans tóku
þeim báðum höndum. Jóhannes Ás-
kelsson jarðfræðingur slóst í för með
þeim í Vík í Mýrdal.
Jóhannes var þá á heimleið úr leið-
angri til Grímsvatna, er hann hafði
farið ásamt þremur öðrum íslending-
um undir fararstjórn Guðmundar Ein-
arssonar myndhöggvara frá Miðdal.
Þeir lögðu upp frá Núpsstað með skíði
og sleða. Náðu þeir á gosstöðvarnar
13. aprfl og til byggða hinn 16. Höfðu
þeir fengið hið besta veður. Það var
dr. Nielsen óblandað fagnaðaðrefni,
að Jóhannes skyldi vera fús til að slást
í förina aftur upp að eldstöðvunum.
Leiðangursmenn bjuggu sig undir
jökulgönguna á Kálfafelli og réðu sér
þar fylgdarmenn, fimm unga bænda-
syni úr sveitinni, Guðlaug Ólafsson á
Blómsturvöllum, Jón Pálsson á Selja-
landi, Helga Pálsson á Rauðabergi,
Sigmund Helgason á Núpum og Kjart-
an Stefánsson á Kálfafelli. Þeir fengu
7. mynd. Keld Milthers (1907-1960) stund-
aði nám í náttúrufræðum við Kaupmanna-
hafnarháskóla 1924-1932 með jarðfræði
sem aðalgrein og lauk þar magistersprófi
og síðar doktorsprófi, árið 1943. Doktors-
ritgerð hans fjallaði um leiðarsteina á
ströndum Danmerkur. Hann var ríkisjarð-
fræðingur í Danmörku og stundaði þar
margvíslegar rannsóknir. Keld Milthers, a
Danish geologist, participated in one of
Nielsen’s expeditions to Iceland but was
not involved in Icelandic investigations af-
ter that time. (ljósm. photo. ?)
hesta til að flytja menn og farangur
upp að jöklinum og tvo menn til við-
bótar til að taka hestana þaðan heim
aftur.
Leiðangurinn lagði af stað frá
Kálfafelli 24. aprfl, 9 menn með 16
hesta og var nú haldið upp undir jök-
ulinn. Um kvöldið slógu þeir tjöldum
þar sem þeir töldu greiðfærast upp
jökulkinnina. Það hafði snjóað nokk-
uð fyrir skemmstu, en engu að síður
gægðist askan frá gosinu víða fram
undan snjónum.
Magister Keld Milthers hafði til
130