Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1988, Síða 14

Náttúrufræðingurinn - 1988, Síða 14
annan farangur, sem þar var skilinn eftir. Dimmviöri var og afleit færð, en Grímsvatnahópurinn komst þó langt áleiðis, og tjölduðu þeir þá fyrst, er þeir hugðu sig vera komna í námunda við gosstöðvarnar. Um kvöldið birti upp með hörkufrosti. „Það sem mest bar á í umhverfinu voru tveir svartir vikurhólar, sem stungu mjög í stúf við hvítan jökulinn og titruðu af hitaupp- streymi í frostbitrunni, en að baki þeim reis gufumökkurinn frá gos- stöðvunum. Nóttina eftir féll loftvogin ákaflega, og jafnframt brast á hvassviðri með miklum fannburði. Næstu tvo daga lágu þeir félagar veðurtepptir í hörkustórhríð, en 2. maí birti skyndilega upp, og fóru þeir þá allir út að gosstöðvunum. En áður en þeir næðu aftur til tjaldsins var brostin á blindhríð að nýju. Ekki tókst þeim félögum að komast niður í sjálfa Grímsvatnakvosina. En þeim heppn- aðist að gera ýmsar athuganir og taka allmikið af myndum, og eru nokkrar þeirra prentaðar í áðurnefndu riti dr. Nielsens. Enn voru þeir veðurtepptir í vonskuhríð 3. maí, en hinn 4. sáu þeir sér ekki fært að bíða lengur við eld- stöðvarnar. Þröngt var orðið um vist- ir, svo að þeir urðu að draga við sig matinn. Þeir tóku sig því upp og lögðu af stað. Eftir 7 klukkustunda ferð rof- aði svo til, að þeir sáu í Þórðarhyrnu og gátu tekið rétta stefnu. Daginn eft- ir (5. maí) komust þeir 10 km áleiðis. Þriðja daginn, 6. maí, skánaði veðrið ögn upp úr hádegi, en engu að síður var snjókoma og skafrenningur. Þótt- ust þeir þá vera komnir í námunda við forðabúrið, og fundu þeir það, með nokkrum naumindum þó, hinn 7. maí. Tjaldið var fennt í kaf, en það yddi á eina merkjastöngina og það dugði. Þegar þeir höfðu mokað tjaldið upp, fundu þeir þar auk vistanna, tveggja daga gamalt bréf frá hópnum, sem fór niður að jökulröndinni. Hann hafði náð tjaldinu en ekki haft þar viðdvöl, til þess að eyða ekki af vistunum, sem þar voru. Grímsvatnafararnir tóku nú hraustlega til matar síns, enda ekki vanþörf á eftir margra daga erfiði og sultarfæði. Síðan héldu þeir áfram ferðinni án frekari dvalar. En veðrið herti stöðugt, svo að þeir neyddust til að tjalda upp úr hádegi. Hélst síðan aftakaveður til kvölds og allan næsta sólarhring, svo að ekki varð hugsað til framhaldsferðar. En snemma dags 9. maí skánaði veðrið svo, að þeir gátu haldið áfram ferðinni. Sem snöggvast rofaði svo til, að þeir gátu greint Há- göngur, og um kvöldið komust þeir loks niður úr hríðinni. Um hálfri stundu síðar komu þeir auga á fjóra menn á leið upp jökulinn. Þetta reyndust vera félagar þeirra í leit að þeim ásamt leiðsögumanni. Þegar jaðarhópurinn kom niður að Kálfafelli og sagði að Grímsvatnafar- arnir væru ókomnir að birgðatjaldinu eins og ætlað hafði verið, urðu menn gripnir ótta um ferð þeirra. Fyrst barst óttinn um sveitina en síðan til Reykjavíkur og þá til Kaupmanna- hafnar ekki löngu síðar. Virtist hræðslan magnast eftir því sem fjær dró vettvanginum. Jafnskjótt og leiðangursmenn komu niður að Kálfafelli heilu og höldnu tókst að stöðva undirbúning að viða- miklum leitarleiðangri af hálfu ríkis- stjórnar íslands. Ferðin til eldstöðvanna í Gríms- vötnum varð þátttakendunum ógleymanlegt ævintýri enda þótt veðr- ið hefði gert hana að hálfgerðu „apríl- hlaupi“. Það féll Jóhannesi Áskelssyni í skaut að skrifa frumlýsinguna af 132

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.