Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 20

Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 20
en Pálsfjall. Þar fann ég brotaberg og einnig einskonar aðfærslurás að aust- anverðu. Útsýnið af toppnum var stórkostlegt. Meðal annars blasti allt Grænalón við, nýtæmt eftir jökul- hlaup. Hinn 31. maí gekk ég upp á Vestari Geirvörtu. Hún er einnig úr líparíti en jökli hulin að mestu, og því lítið að skoða. Hinn 1. júní fluttum við okkur, þótt færðin væri ill. Við tjölduðum fyrir neðan Geirvörturnar á öldu, sem virt- ist lík fleygboga í lögun séð ofanfrá. Nilaus byrjaði að mæla tjörn með leysingavatni, með því að setja upp bambusstengur. Við lögðum af stað þaðan kl. 6 síðdegis í átt að Græna- lóni. En færðin á suðurkinn jökulsins fór síversnandi, svo að við hlutum að tjalda. Að morgni 2. júní lögðum við af stað í sólskini. Um nóttina hafði fallið um 5 sm þykkur snjór ofan á krapa- sullið frá deginum áður. Um hádegis- bilið setti yfir þoku með úðaregni. Við náðum að vestur- og suðurhlið Grænalóns, og eftir því sem hentug- leikar leyfðu, tókum við myndir af ummerkjum hlaupsins. Jakaferlíki stóðu á botni lónsins og strandlínan fyrir hlaupið sást greinilega mörkuð af snjónum. Komum í tjaldstað kl. 8 að kvöldi. Hinn 3. júní fóru Nilaus og Jón að skoða jökulruðningana austur af tjald- staðnum, en ég fór vestur um þá. Hvarvetna var sterk brennisteinsfýla, svo að útstreymi frá jarðhita hlýtur að vera þar í grennd. Enn vorum við veðurtepptir 4. júní í slagveðursrigningu. Maríuerla kom þó að tjaldinu til okkar. Hinn 5. júní reyndum við að kanna jökulölduna sunnan og austan við tjaldstaðinn, sem ofanfrá séð virtist hvfla á föstu bergi en svo reyndist þó ekki. Meðan við vorum á heimleiðinni hvessti mjög af austri og þegar að tjaldinu kom, var Jón að hlaða skjól- vegg úr snjó austan við tjaldið. Þá var orðið svo hvasst að við réðum okkur varla. Ofviðrið hélst alla nóttina, og undir morguninn urðum við að fara út til þess að styrkja skjólvegginn, en við höfðum naumast lokið því, þegar skyndilega lygndi. Við gengum þá að litla skerinu vestan við Grænalón og vorum þar allan daginn. Það er úr móbergi og mikið gróið að sunnan- verðu. Hinn 7. júní var þoka með hagl- og snjóéljum öðru hverju. Við byrjuðum á að mæla aftur jökullónið, sem Nil- aus mældi áður. Síðan héldum við fram með norðurhlíð Eystrafjalls. Þar rakst ég á hrauntaum, sem á upptök undir jöklinum, en kemur fram undan jökulröndinni. Einnig skoðaði ég lípa- rítið við Bergvatnsá. Við urðum að bera skíðin á bakinu heim í tjaldstað. Næsta dag var niðaþoka með krapa- hríð og gerði um 20 sm djúpan snjó, svo að vonlaust var að hreyfa sig sakir ófærðar. Við lágum því um kyrrt, og nú tókum við Nilaus að bera saman bækur okkar um það, sem borið hafði fyrir augu við jökulröndina og hug- myndir okkar um myndun móbergs- ins. Við komumst ekki að verki fyrr en eftir hádegi daginn eftir en í norðan stinningskalda héldum við þá áfram að skoða móbergshnjúkinn, sem fyrr var getið þangað til kl. 9 um kvöld- ið. Við tókum upp tjaldið og lögðum af stað kl. hálf fimm um morguninn 10. júní. Leið okkar lá fram hjá fyrsta tjaldstað Nilauss og Jóhannesar. Þar fundum við dráttaról úr stóra sleðan- um og sáum af því, að samferðamenn okkar höfðu komist heilu og höldnu niður jökulinn. Guði sé lof. Við tók- 138

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.