Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 40

Náttúrufræðingurinn - 1988, Qupperneq 40
þessum grynningum en jarðhiti hefur ekki verið staðfestur þar svo vitað sé. 23 Utarlega í Hestfirði, Ögurhreppi. Nokkru fyrir norðan girðinguna sem nú liggur þvert yfir Hvítanesskagann kallast Innritangar. Á um 80-100 m svæði eftir fjörunni kemur 18-25°C heitt vatn upp um samanlímda mal- arhellu sem fer í kaf á flóði. Hvergi er mælanlegt mikið vatnsrennsli en út undan marbakkanum nyrst á svæðinu nálægt stórum bollasteini er talsverð hreyfing á sjónum sem bendir til nokkurs vatnsstreymis. Að auki er þar töluvert bólustreymi. Við Innritanga voru bátar oft settir á veturna, enda vök við landið sem gjarnan gufaði upp af (Jón Benjamínsson 1979). 24 Hvítanes í Ögurhreppi. Yst á Hvítanesinu austanverðu er Laugar- vík. Úti í sjónum þvert yfir víkina í stefnu á Landhólma eru heitar upp- sprettur. Hitastig í þeim hefur ekki verið mælt. Nokkru sunnar en skammt fyrir norðan Hvítanesbæinn hefur þjóðveg- urinn verið lagður yfir vík. I fjörunni niður undan veginum seytlar víða upp 25-30°C heitt vatn. Tvær laugar eru helstar, Innrilaug og Ytrilaug og fara báðar í kaf á flóði. í þeim var þvegin ull áður fyrr. Heildarrennsli á svæðinu er 0,5-11/s. (Jón Benjamínsson 1979). 25 Kleifar í Ögurhreppi. Við beygj- una fyrir Skötufjarðarbotn, þar sem þjóðvegurinn liggur yfir Kleifaós að vestan, er nefnt Laugareyri. Þar mæl- ist 9-12°C velgja í sandi sem flæðir yfir þegar hásjávað er. (Jón Benjamínsson 1979). 26 Botn í Reykjafjarðarhreppi. Nokkur hundruð metrum fyrir utan íbúðarhúsið að Botni er volgra niðri í fjöru og fer hún í kaf á flóði (Jón Sól- mundsson 1959 og 1960). 27 Hörgshlíð í Reykjafjarðarhreppi. Um 1-2 km fyrir innan bæinn að Hörgshlíð, á milli Skeiðár og Saurn- ess, er nefnt Laugahlíð. Víða með hlíðinni kemur upp heitt vatn og á einum stað hefur vatni, rúmlega 48°C, verið veitt í steypta setlaug niður und- ir fjöru. Norður af setlauginni er 30- 40 m svæði þar sem allt að 43,3°C heitt vatn kemur upp um samanlímt fjörugrjót, en þó einkum undan mar- bakkanum úti í sjónum. Önnur útfell- ingahella er 50-70 m utar með fjör- unni en vatnið þar er ekki eins heitt. Báðar þessar útfellingahellur fara að mestu í kaf á flóði. 28 Reykjanes í Reykjafjarðar- hreppi. Tvær víkur eru fyrir enda Reykjaness. Heitir sú vestari Hvera- vík og er niður undan heimavistar- skólanum. Fyrir botni hennar og eins eitthvað út með henni beggja megin (aðallega þó austanmegin) eru miklar útfellingar í fjörunni. Upp um glufur í þessari útfellingahellu, sem kemur upp úr á fjöru, streymir víða heitt vatn. Eins streymir heitt vatn upp úti í sjónum sem og undan útfellingahell- unni og bólustreymi sést víða í sjón- um. (Jón Benjamínsson 1979). Guð- mundur Ingi Haraldsson (munnl. uppl. 1987) mældi hæstan hita á þess- um slóðum 88-90°C árið 1984. Út af Hveravíkinni eru fjögur sker (að öllum líkindum berggangur) sem í eru hverir. Koma flest þeirra upp úr á miklum fjörum, og það ysta ekki nema á stórstraumsfjöru, en í því mælist hæstur hiti. Ögerlegt er að giska á heitavatnsrennsli frá þessu svæði enda eru bæði hitastig og rennsli háð sjávarstöðunni og hvort er að flæða út eða að. (Jón Benjamíns- son 1979). Skarphéðinn Ólafsson (munnl. uppl. 1987) segir að bólu- streymi sé umhverfis öll fjögur skerin. Eins hefur hann orðið var við mikið bólustreymi í sjónum 50 m fyrir utan ysta skerið, en í því skeri hefur hann 158

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.