Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 45

Náttúrufræðingurinn - 1988, Side 45
af því er Grettir synti úr Drangey yfir á Reykjaströnd. Og þar er svo greint frá er hann hafði tekið land: „Hann gekk til bæjar at Reykjum ok fór í laug, því at honum var kalt orðit nökkut svá og bakaðist hann lengi í lauginni um nóttina ok fór síðan í stofu.“ Eins og umhorfs var á fyrri helm- ingi þessarar aldar gat verið um tvær laugar að ræða en báðar eru þær nú spilltar. Var önnur uppi á malarkamb- inum, lengi notuð sem þvottalaug og hlaðinn að henni garður. Sú laug fyllt- ist af grjóti í haustbrimi árið 1934 og hlaðni garðurinn hvarf þá að mestu (Jón Eiríksson munnl. uppl. 1987). Hallgrímur Jónasson (1946) greinir frá því að laugin heiti Reykjalaug og sé sú sem um er getið í Grettissögu. Jón Ei- ríksson nú bóndi á Fagranesi segist í æsku hafa vanist því að kalla laug sem var fyrir neðan malarkambinn Grett- islaug. Hún var niður við sjávarmál í samanlímdri hnullungaborinni sjávar- möl, nokkru minni og heitari heldur en þvottalaugin. Þessi laug hvarf í haustbrimi fyrir nokkrum árum en þá sópaðist öll möl og hnullungar burt á um 20 m svæði þar sem laugin var og eftir er nakin klöpp. Þar vætlar nú heitt vatn á víð og dreif upp um sprungur og fara sumar þeirra í kaf á stórstraumsflóði. Líklegt er að margar „Grettislaugar“ séu búnar að myndast þarna í gegnum tíðina og síðan hverfa í einhverju stórbriminu sem gerir á nokkurra áratuga fresti og valdið hafa ómældum spjöllum á Skaga. 41 Út af Reykjarhóli í Skagafirði. Fyrir allnokkrum árum komu upp heitir steinar með útfellingaskellum í vörpu báts sem lenti í festu stutt út af Reykjarhóli á Bökkum. 42 Við Kolbeinsey. Kolbeinsey er á Koleinseyjarhryggnum sem liggur fyr- ir norðan land í norður-suður stefnu. Nokkrar mflur suður úr eynni, á 67°05'N og 18°43'V, varð fyrst árið 1974 vart við mikið bólustreymi í sjón- um þar sem er um 90 m sjávardýpi niður á hrygginn (5. mynd). Sýni voru tekin úr sjónum á þessu svæði árið 1981. Niðurstöður efnagreininga á þeim sýnum gáfu til kynna áhrif frá jarðhita á efnasamsetningu sjávar, einkum varðandi kísil, mangan, hel- íum samsætur og brennisteinssam- bönd og bentu til að um háhitasvæði væri að ræða. (Hafrannsóknastofnun- in 1982, Jón Ólafsson munnl. uppl. 1987). Árið 1987 var á vegum Hafrann- sóknastofnunarinnar í samstarfi við hafrannsóknastofnunina í Woods Hole í Bandaríkjunum og náttúrufræðideild breska sjónvarpsins BBC farið í leið- angur á Kolbeinseyjarsvæðið. Teknar voru neðansjávarmyndir og sýni af botni og úr uppsprettum heits sjávar. Af gögnum eftir leiðangurinn má ráða að þarna komi upp sjóðandi vatn og gas úr allt að 185°C heitum hverum. (Hafrannsóknastofnunin 1988). 43 Ólafsfjörður. í Greinargerð Kristjáns Sæmundssonar (1966) fyrir hitaveitu Ólafsfjarðar er getið um þrjá staði þar sem jarðhiti er í eða við sjáv- arfjöruna: 1) „í fjörunni út með Arnfinnsfjalli er 15°C heit volgra í flæðarmálinu nið- ur undan áberandi gili sem er um 1,3 km fyrir sunnan Skarfasker." 2) „Kleifarhorn, þar í fjörunni stutt norðan við fisktrönur kemur upp 34°C heitt vatn.“ 3) „Um 1 km fyrir utan kaupstaðinn í fjörunni út með Ólafsfjarðarmúla. Sennilegt er að þar komi 10-15°C heitt vatn upp um klapparglufur í flæðar- málinu.“ 44 Ystibær í Hrísey. í fjörunni við Laugarkamb á norðurenda eyjarinnar er laug sem fer í kaf á flóði. Hitastig 163

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.