Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 46
Wi
Dýpi
50-
100
150-
5. mynd. Dýptarmælisútskrift af jarð-
hitasvæðinu við Kolbeinsey (42). Siglt
var í vestur. Upp af hæðinni sem nær
upp á 90 m dýpi rís strókur af gasbólum.
Echo sounding from the Kolbeinsey geot-
hermal field (42). The rise extends to 90
m below sea level. A plume of gas
bubbles rises from its top. (Úr Hafrann-
sóknir, 25. Hafrannsóknastofnunin
1982).
er 60-65°C og rennsli innan við 0,5 1/s.
(Trausti Einarsson 1942, Jón Sól-
mundsson 1959 og 1960, Sigmundur
Einarsson o.fl. 1979).
45 Syðstibær í Hrísey. Vestan á eyj-
unni um 1 km fyrir norðan þorpið eru
tveir jarðhitastaðir sem sjór flæðir yf-
ir. Sá nyrðri er í fjörunni framan und-
an borholum númer 1 og 4 og mælist
hiti þar 16°C og 51°C í tveimur seyr-
um. Um 150 m sunnar út af Kríunesi
er 22°C volgra. (Grímur Björnsson og
Ólafur G. Flóvenz 1985).
46 Hörgárgrunn í Eyjafirði. Hinn
29. júlí árið 1962 lenti varðskipið Mar-
ía Júlía í festu á 97 m dýpi í Hörgár-
grunnskantinum (65°49'N og 18°08'V).
Um það sem kom upp með vörpunni
úr festunni skrifaði Aðalsteinn Sig-
urðsson í dagbók sína: „1 karfa volgir
steinar úr kísil og leir (hverahrúður)."
í fyrirspurnum á Hjalteyri og víðar við
Eyjafjörð kannaðist fólk við að hafa
heyrt eldra fólk hafa á orði að einmitt
á þessum stað hefði fjörðinn aldrei
lagt veturinn 1918.
47 Ysta-Vík í Grýtubakkahreppi. f
skýrslu Orkustofnunar um jarðhita í
nágrenni Akureyrar (Axel Björnsson
og Kristján Sæmundsson 1975) er
staðsetningu jarðhita í Ystu-Víkur-
landi lýst með svofelldum orðum: „Á
40 faðma dýpi um 200-300 m undan
Ystuvíkurhólmum“. Heimilda er ekki
getið en í skýrslu um jarðvarmamat
íslands (Guðmundur Pálmason o.fl.
1985) segir í athugasemdum: „Sést á
dýptarmæli." Sigurður Hólmgrímsson
bóndi í Ystu-Vík (munnl. uppl. 1983)
segir það gamalla manna mál að vet-
urinn 1918 hafi haldist auð vök á sjón-
um út af Ystuvíkurhólmum í stefnu á
Hjalteyri. Heyrt hefir hann að sjó-
menn tali um, að í logni sjái þeir loft-
bólur koma til yfirborðs sjávarins. Þá
telur Sigurður að umræddur staður sé
lengra undan landi en talið er í skýrslu
Orkustofnunar.
48 Húsavík. í skýrslu Rannsókna-
ráðs ríkisins (1944) er sagt að niðri í
fjöru á svokallaðri Laugarhellu komi
allt að 32°C heitt vatn upp um smá-
164