Náttúrufræðingurinn - 1988, Síða 47
sprungur í klöppinni á 20-30 m löngu
svæöi og er rennsli talið um 3 1/s. A
þessum tíma var Laugarhella við
norðurenda Húsavíkurþorps en er nú
fyrir botni hafnarinnar. í skýrslu um
jarðhitann við Húsavík (Jens Tómas-
son o.fl. 1969) er getið um 28°C heitt
vatn víða í fjörunni. Árið 1983 mældist
27,8°C heitast á þessu svæði og giskað
á mun minna heitavatnsrennsli en áð-
ur hafði verið gert.
Fyrir norðan Húsavík niður undan
Laugardalsnefi og Húsavíkurhöfða
eru heitavatnsmigur í fjörunni á all-
nokkrum kafla, ýmist í klappar-
sprungum eða millilagi. í skýrslu
Rannsóknaráðs ríkisins (1944) er
mestur hiti sagður 63°C. Við dælu-
prófanir úr einni sprungunni árið 1952
mældist hæstur vatnshiti 66°C (Jens
Tómasson o.fl. 1969). Árið 1983 fór
höfundur þarna um ásamt kunnugum
manni en þá tókst ekki að finna heit-
ara vatn en 54°C.
49 Bangastaðir í Kelduneshreppi.
Undir Skeiðsöxl kemur allnokkuð af
heitu vatni úr millilagi í fjörunni og
um 100 m norðar er talið að sé volgra í
fjörunni sem fari í kaf á háflæði. Á
þessu svæði mældist 42^t3°C hiti árið
1964. (Aðalsteinn Sigurðsson, munnl.
uppl. 1987). Nýverið mældist 49°C hiti
á vatninu sem kemur úr millilaginu
(Guðmundur Ingi Haraldsson munnl.
uppl. 1986).
50 Lón í Kelduhverfí. Við Ytra-
Lónið austanvert er jarðhitasvæði sem
kallað er Laugar. Sagnir eru um að í
upphafi þessarar aldar hafi þar mælst
82°C hiti. Við skarkolarannsóknir árið
1964 voru gerðar hitamælingar í Lón-
inu sem bentu til jarðhita en flóðs og
fjöru gætir í ísöltu lóninu (Aðalsteinn
Sigurðsson 1965). Árið 1986 mældist
hæstur hiti 50°C í sandbotninum í lón-
inu. Hitans í botninum gætir á 300-
400 m belti með austurbakkanum allt
að 200 m út í lónið. (Guðmundur Ingi
Haraldsson og Gunnar V. Johnsen,
1986). Þá má geta þess að einhvers
staðar norðan við Fjallahöfn herma
sagnir að muni vera jarðhiti í fjöru-
borðinu.
51 Skógalón í Kelduhverfi. í Skóga-
lóni gætir flóðs og fjöru þótt lónið
sjálft sé líklega innan við helmings
blanda af sjó. Þegar fjarar út koma
sjóðheitar leirur upp úr og mælist þar
hæstur hiti 100°C, og er töluvert
rennsli að sjá (Guðmundur Ingi Har-
aldsson munnl. uppl. 1987). Valga-
rður Stefánsson (1977) benti á að und-
ir Öxarfirðinum gæti verið háhita-
svæði.
52 Berufjörður. Við syðra landið
innst í Berufirði myndast alltaf vök í
lagnaðarís á sama stað. Er þetta gegnt
Berufjarðarbæjunum, stutt innan við
Reiðeyri. Vökin er nefnd Prestavök,
en munnmæli herma að þar hafi
drukknað prestur snemma á öldinni
sem leið. Að líkindum hefur grynnkað
með árunum á þessum slóðum vegna
árframburðar en sjávardýpi er 1-2 m.
(Bragi Gunnlaugsson munnl. uppl.
1988). Ekki er vitað hvað veldur vaka-
mynduninni en hugsanlega gæti þar
verið jarðhiti, gasstreymi eða grunn-
vatnsrennsli. í því sambandi má geta
þess að allmikið gasstreymi er í smá-
tjörn um 3^1 km vestar, inni á svo
nefndum Beitivöllum. Staðarins er
fyrst og fremst getið hér vegna gruns
fremur en fullvissu um jarðhita.
53 Út af Hálsum í Suðursveit. Við
síldarrannsóknir á rannsóknaskipinu
Árna Friðrikssyni árið 1979 kom fram
lóðning á fiskleitartækið grunnt út af
Hálsum. Snúið var á lóðninguna sem
við nánari skoðun reyndist vera bólu-
streymi af 36 m dýpi. (Jóhannes
Briem munnl. uppl. 1988). Botn er
sendinn á þessum slóðum og naggar
standa víða upp úr botnsetinu. Ekki
165