Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1966, Qupperneq 15

Náttúrufræðingurinn - 1966, Qupperneq 15
N ÁT T Ú RU F RÆÐINGURINN 165 sígoshrinum fylgdu allmiklir skruðningar, öskufall var þessu sam- fara og jókst gosmakarmagnið, er á leið hrinurnar, og bar þá minna á gufunni. Fylgdu þá oft rniklar eldingar. Sígoshrinurnar enduðu allajafna skyndilega, og varð þá algjört hlé á gosinu, venjulega varaði það fáar mínútur, en stundum marga klukkutíma (sbr. gosannálinn). Er gos byrjaði að nýju var það oft- ast slitrótt sprengigos og gígurinn þá orðinn fullur af sjó upp að sjávarmáli. Hafði þá sjórinn rofið rauf í rif það, sem hlaðizt hafði fyrir gígskarðið, eða rifið rofnað vegna hruns niður í gígpípuna, sem oft hafði víkkað vegna uppstreymisins meðan Jrað var sem kröftugast. Meðan á uppstreyminu stóð var pípan þurr langt niður og lóðréttum veggjum hennar ]rá hætt við hruni, þegar er þrýsting- ur tók að minnka. Þessi sígos voru smækkuð útgáfa af gosi Jrví í Vesúvíusi 6. apríl 1906, sem klassískt er orðið í lýsingu hins fræga eldfjallafræðings Frank A. Perret. Sumarið 1965 gafst oft tækifæri til Jress að fylgjast með háttum Syrtlings frá Surtsey, en Syrtlingsgosið var smækkuð útgáfa af gos- inu í Surti eldra. Línuritið á 6. mynd er byggt á mælingum mín- um að kvöldi 24. ágúst 1965, og er dæmi um hegðun Syrtlings. Tæki hafði ég ei utan sjónauka og stoppúr, og flokkunin í litlar, stórar og meðal sprengingar er vitanlega ekki mjög nákvæm, en allt um það hygg ég, að línuritið gefi nokkuð rétta mynd. Hæð Syrtlings var um 50 m þann dag og í sígoshrinum náði dökkur gos- malarstrókurinn venjulega sex til áttfaldri hæð hans — gufan steig vitanlega miklu hærra — og í hæstu sprengingum náðu hraunkúlur svipaðri hæð, en í þeim litlu sentust þær aðeins skammt upp fyrir gígbarmana. Veður var fremur stillt þennan dag og sjó braut ekki mikið við eyna, en rifið, sem í sígoshrinunum hlóðst upp í skarðið, sem var á gígveggnum sunnanverðum, náði 5—6 m hæð undir lok hrinanna, en virtist hrynja niður í gíginn, er þeinr lauk. Svo sem fyrr getur urðu ekki miklar breytingar á bergkviku Eyja- elda meðan á gosinu stóð og þær breytingar, sem urðu, voru frem- ur í þá átt að minnka sprengimátt hennar en auka hann. Breyting- arnar á háttum gossins voru því nær einvörðungu háðar því, hvern aðgang sjórinn hafði að bergkvikunni, en það var háð veðri og vindi og stærð þeirrar gosmalarkeilu, sem upp lilóðst. Vissulega voru það mjög ólík gos, sprengigosið, sem var í Surtsey fyrstu mán-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.