Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1966, Side 40

Náttúrufræðingurinn - 1966, Side 40
186 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN að flest mundi fara fyrir ofan garð og neðan hjá lesendum. Þó skal reynt að segja í fáum dráttum frá niðurstöðum þeirra bergfræði- legu athugana, sem gerðar hafa verið á Surtseyjarhraunum og ösku. Því efni, sem komið hefur upp í Surtseyjargosinu má skipta í laus gosefni og hraun. Efnafræðilega séð er ekki hægt að draga nein skörp mörk milli þessara flokka og eini sjáanlegi munurinn á innri gerð bergsins er sá, að askan er að mestu gler, enda snöggkæld kvika, en hraunið inniheldur meira magn kristalla, þar sem kólnun kvikunnar var mun hægari. Þessi skipting í laus gosefni og hraun orsakast því ekki af efnafræðilegum eða mineralogiskum breyting- um í kvikunni, heldur einungis af breyttum ytri aðstæðum, er sjór náði ekki lengur að blandast kvikunni í gíghálsinum. Ekki er auðvelt að leiða neinum getum að því, á hvaða dýpi kvikuþró Surtseyjar liggur. Til samanburðar rná geta þess, að eld- fjallafræðingar á Hawaii staðsettu jarðhræringar, sem stóðu í sam- bandi við eldgos á Kilauea á 60 km dýpi, en engar sambærilegar mæfingar eru til héðan. Hvað sem dýpinu líður má áætla, að efnið í kvikuþrónni liafi upphaflega verið fullkomlega bráðið. Um það leyti, sem gosið í Surtsey liefst, hafa myndast tvenns konar kristallar í kvikunni, plagioklasar, sem voru allt að 10 cm í þvermál og smáir kristallar af olivini. Strax á fyrstu dögum hraungossins hverfa pla- gioklaskristallarnir, en magn olivinkristalla byrjar að aukast jafnt og þétt. Þessi aukning á olivinmagninu heldur stöðugt áfram og nær hámarki í síðustu goshrinum Syrtlings. Efnasamsetning bergs- ins breytist einnig í samræmi við breytta steintegundasamsetningu. Kísilsýra lækkar lítið eitt, sömuleiðis alkalimálmar, natrium og kalium. Magnium hins vegar hækkar úr 8 í 15 af hundraði reiknað sem magniumoxyð. Svipaðar breytingar verða á snefilefnainnihaldi. Króm og nikkel hækka mjög mikið er líður á gosið, strontium og zirkonium lækka hinsvegar, en kóbalt og yttrium standa í stað. Ætla má að þau gosefni, sem snöggkælast vegna snertingar við sjó í gígnum eða eftir stutt rennsli ofanjarðar gefi réttasta mynd af ástandi kvikunnar í þrónni. Renni hraunið hins vegar um lengri veg verður kólnunin hægari og kristöllun kvikunnar heldur áfram með eðlilegum hætti. í Surtseyjarhraunum má finna mörg millistig kristöllunar þar sem hraunið hafði runnið mislangan veg áður en það náði til sjávar, og eins er hægt að finna berg, sem er fullkom- lega kristallað. Með mælingu á magni hverrar kristaltegundar

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.