Náttúrufræðingurinn - 1966, Page 42
188
NÁTTÚ RU FRÆÐINGU RINN
SUMMARY
Geochemical studies in Surtsey
by Guðmundur E. Sigvaldason.
University Research Institute, Reykjavík.
A sliort description oí chemical and petrological work on material írom the
Surtsey eruption is presented. Gas sampling was successful on a few occasions,
when unusually favorable conditions had developed close to the crater. Samp-
les were essentially free from any atmospheric contamination and contained
high amounts of hydrogen, sulphur dioxide, carbon dioxide and some carbon
monoxide, nitrogen, argon, elementary sulphur and hydrogen chloride.
Relatively strong differentiation due to gravitative settling of olivine
crystals in the magma chambár was observed in the lava produced at different
times during the eruption.
Results of the studies made on the volcanic product will lre published in
detail elsewhere.
Þorbjörn Sigurgeirsson:
JarÖeðlisfræðirannsóknir
í sambandi við Surtseyjargosið
Surtseyjargosið varð mörgum vísindamönnum, bæði innlend-
um og útlendum, hvatning til að rannsaka þau fyrirbæri, sem þar
birtust. Aðstæður voru að vísu nokkuð erliðar, þar sem gosstöðv-
arnar eru úti í hafsauga, en ýmsir aðilar urðu til þess að greiða
götu þeirra, sem að rannsóknunum unnu, svo að unnt reyndist að
halda uppi tíðum ferðum út til eyjarinnar. Má þar einkum nefna
íslenzku landhelgisgæzluna, sem alltaf var reiðubúin að flvtja
vísindamenn með skipum sínum út til Surtseyjar þegar aðstæður
leyfðu, og síðar einnig með þyrlu; yfirstjórn bandaríska herliðsins
á Keflavíkurflugvelli, sem lánaði þyrlur í margar ferðir út til eyj-
arinnar s. 1. vetur; og Surtseyjarnefndina, sem kostaði fjölda ferða
út til eyjarinar, bæði með skipum og flugvélum.