Náttúrufræðingurinn - 1966, Page 49
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
195
sér tæki til rafsviðsmælinga á jörðu niðri og einnig flugvél útbúna
slíkum tækjum. Menn þessir unnu að rannsóknum á eldingunum
í nokkrar vikur ásamt íslenzkum aðiljum, en rafsviðsmælingunum
var síðan haldið áfram af Sveinbirni Björnssyni eðlisfræðingi. Nið-
urstöður þessara rannsókna hafa verði birtar í tímaritinu Science
(Anderson o. fl. 1965)
Flugvélin flaug bæði yfir og umhverfis gosmökkinn og mældi
rafsviðið, sem alls staðar reyndist stefna út frá honum, en það svar-
ar til þess að mökkurinn sé hlaðinn jákvæðu rafmagni.
I gufúhvolfinu er jafnan allsterkt rafsvið, eða um 100 volt á
metra á heiðskírum dögum. Yfir toppi skýsins, sem var í 3800 m
hæð, reyndist sviðið 100 sinnum sterkara, eða 10 kV/m. Síðar var
flogið í 1800 m hæð meðfram skýinu, þar sem það bai'st undan
vindi, og reyndist sviðið þar allt að 30 kV/m. Sterkast var það þar,
sem skýið steig upp frá gígnum, en síðan fór hleðslan í skýinu
minnkandi á meðan það barst undan vindinum, svo að hún helm-
ingaðist á svo sem 5 mínútum. Loks var flogið alloft í 300 m hæð
framhjá gígnum. í hvert skipti varð vart við jákvætt rafmagn í gos-
mekkinum, en rafsviðið var yfirleitt veikt, mest 5 kV/m.
í eitt skipti var flogið inn í gosskýið og kviknaði þá hrævareldur
utan á flugvélinni, sem teygði sig allt að 5 m fram úr trjónu vél-
arinnar. Engra eklinga varð vart á meðan flugvélin var við mæl-
ingarnar.
Rafsviðsmælingar, sem hinir bandarísku vísindamenn gerðu á
skipi, sem staðsett var til hliðar við gosmökkinn, þar sem hann
lagði undan vindinum, gáfu allt að 8 kV/m og stefndi sviðið niður
eins og vænta má ef skýið er hlaðið jákvæðu rafmagni. Á þeim tíma
voru eldingar í gosmekkinum, en við hverja eldingu féll rafsviðið
skyndilega og óx svo aftur þess á milli.
Allar þessar mælingar bæði af sjó og úr lofti benda til þess, að
í gosskýinu sé eingöngu jákvæð rafhleðsla og að hún berist með gos-
stróknum upp úr gígnum. Áætlað var að rafstraumurinn upp gos-
strókinn væri um 0,03 amper, lileðslan í honum 2 • 107 coulomb í
rúmmetra og að rafhleðslan í skýinu væri 100 sinnum strjálli.
Síðar endurtók Sveinbjörn Björnsson mælingarnar á einu varð
skipanna og var þá siglt undir mökkinn 2—3 km frá gígnum. Kom
þá í ljós, að undir gosskýinu eða neðst. í því var töluvert magn af
neikvæðu rafmagni.