Náttúrufræðingurinn - 1966, Page 55
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
201
3. mynd. Segulsvið yfir Surtsey í 200 xn hæð á línu frá suðvestri til norðausturs.
Fig. 3. Magnetic field intensity at 200 m above sealevel on a line crossing
Surtsey from SIT tp NE.
verður mjög lítið vart. Dýptarmælingarnar sýna hæðardrag, sem
gengur suðvestur úr Surtsey, en áhrif þessa hæðardrags koma frani
á segulmælingunum. Hér er því ekki um gosmöl eða haug af laus-
um gosefnum að ræða, heldur segulmagnað basalt. Að öllum
líkindum er hér þó um nýja gosmyndun að ræða, en hún líkist ekk-
ert Surtluhæðinni, þar sem bráðin hraunkvika rann upp úr hafs-
botninum, heldur er lnin rniklu flatari og útbreiddari. Ef til vill
er hér um að ræða hraun frá Surtsey, sem breiðst hefur út á liafs-
botni eftir að hafa koniið upp í hraungígnum og losað sig þar við
gasið.
l.oks hafa verið merktir tveir staðir í Surtsey til endurtekinna
segulmælinga. Annar er um 200 m norðaustan við gíginn og tæpa
100 m utan við hraunjaðarinn, 130 m yfir sjó. Hinn er á hæð norð-