Náttúrufræðingurinn - 1966, Side 58
204
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
19. maí, en hraunrennslið hætti hinn 17. Rúmum mánuði eftir
að Syrtlingur tók að gjósa ösku, og eyja hafði myndazt, fór aftur
að bera á hinum sérkennilegu sveiflum, í fyrsta skipti 3. júlí,
og úr því nokkuð stöðugt fram undir miðjan október. Syrtlingur
sást síðast gjósa 17. október, en sveiflurnar sjást áfram dag og dag
allt til ársloka. Skömmu eftir að Syrtlingur hætti, hefjast jarð-
skjálftar á nýjan leik, sá fyrsti 28. október. í nóvember koma síðan
14 jarðskjálftar, en enginn í desember.
Frá 23. janúar til 11. apríl 1964 var jarðskjálftamælir starfræktur
í Vestmannaeyjum af jarðhitadeild Raforkumálaskrifstofunnar.
Samkvæmt upplýsingum Guðmundar Pálmasonar koma allir jarð-
skjálftakippir lram í Vestmannaeyjum, sem áður voru nefndir frá
þessu tímabili, og margir í viðbót. Einnig eru stöðugu sveiflurnar
mun greinilegri en bæði í Reykjavík og á Kirkjubæjarklaustri. 1.
febrúar sýna línuritin frá Vestmannaeyjum yfir 30 jarðskjálfta-
kippi. Síðan verður öðru hvoru vart við smá kippi fram til 1. marz.
Engra jarðskjálfta verður vart um það leyti sem öskugosið hætti
og hraungos tók við. Sveiflurnar gera meira og minna vart við sig
megnið af tímanum, sem mælingin stendur yfir. Þær eru nrjög
reglulegar og geta staðið langtímum saman án jress að nein veruleg
breyting verði á útslaginu. 1. og 2. apríl liggja sveiflurnar niðri, en
standa svo nokkuð samfellt fram til 9. apríl.
Þegar tímadreifing jarðskjálftakippanna er borin saman við sögu
gossins, kemur í ljós, að jarðskjálftar eru jafnan samfara tilfærslu á
gosstaðnum. Það veldur þó nokkurri furðu, hve lítið ber á jarð-
skjálftum í byrjun gossins. Ef til vill tákna hinir veiku kippir á
Kirkjubæjarklaustri dagana 6.-8. nóvember byrjun gossins á hafs-
botni. Hefur þá tekið það um viku að ná til yfirborðsins. Skjálft-
arnir í desember og janúar gætu staðið í sambandi við Surtlugosið
og flutning á milli gíga í Surtsey sjálfri. 1. febrúar opnast nýr gígur
í Surtsey, sem síðar varð hraungígurinn, en einmitt þennan dag
verða mjög margir jarðskjálftar. Þegar hraungosið hættir í maí
1965 og Syrtlingur byrjar, standa jarðskjálftar í nokkrar vikur, og
það sama gerist þegar Syrtlingur lokast og gosið flyzt suðvestur fyrir
Surtsey.
Jarðtitringurinn eða sveiflurnar virðist aftur á móti standa í
sambandi við gosið sjálft, einkum öskugos eða sprengigos. Þessar
jarðhræringar byrja 21. nóvember, en þá er talið að sprengigos fær-