Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1966, Síða 65

Náttúrufræðingurinn - 1966, Síða 65
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 211 Sigurður Þórarinsson: Um Maríuþang og fleira í síðasta hefti Náttúrufræðingsins 1964 birtist skemmtileg grein um þang og þara eftir Ingólf Davíðsson grasafræðing. Hann ræðir þar um söl og annan þörungagróður, sem menn hafa lagt sér til munns, m. a. Maríusvuntu og Maríukjarna. Maríu nafnið minnti mig á klausu í riti Jóns Guðmundssonar lærða: Ein stutt undirriett- ing um íslands aðskilianlegar náttúrur. Þessi klausa er svohljóðandi: „Á brimklettum vex slafak, sumer kalla Mariuþang edur brimsöl. Þad er hier bakad j milli heitra hellna, og þær kökur eru sem ostur; sie Jiad j heitre miólk etid, lætur menn vel sofa; þad má og þurka sem söl" (Islandica, vol. XV, bls. 2). Margt fleira skrifar sá lærði Jón um ætilega þörunga við íslandsstrendur, sem ekki verður rakið hér, en ofangreind klausa er næsta merkileg. Hrm fræðir okkur um það, að um 1640, er Jón lærði skrifaði rit sitt, var slafak ennþá nafn á ætilegu þangi eins og það enn er í færeysku, en á nútímamáli er slafak aðeins notað um illgresi og annað gras, sem vex á oftaddri jörð, einkum kringum bæi og á áburðarhaugum. Er þetta sú eina merking orðsins, sem nefnd er í orðabók Sigfúsar Blöndals. Orð þetta er úr írsku (slabhagan) og er þar notað um ætilegt þang. Gefur það vísbendingu um að það séu frændur vorir írar, sem hafi kennt okkur að éta Maríuþang. Ekki er alveg ljóst, við hvaða tegund Jón lærði á með slafaki, öðrum nöfnum Maríuþangi eða brimsölvum. Af klausum hans má ráða, að hann á ekki við venjuleg söl (Rhody- menia palmata). Vera má að Irar eða Færeyingar kunni hér nánari skil á. í sama hefti Nfr. ræðir Ingólfur Davíðsson um davíðslykil, Primula egalikensis, maríulykilstegund, sem hvergi hefur fundizt hérlendis nema á sjávarbökkum neðan við Búðarmýri á Árskógsströnd og í næsta nágrenni. Ingólfur varpar fram spurningunni um það, hvern-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.