Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1934, Qupperneq 13

Náttúrufræðingurinn - 1934, Qupperneq 13
NÁTTÚRUFR. 123 Nokkru seinna finnst gullhringur í mýri í sama héraði. Af gerð hans er eigi hægt að ráða aldurinn. En við frjógreinum lagið, er hann fannst í, og finnum þar sömu hlutföll milli trjá- frjóa og í laginu, er öxin fannst í. Þá getum við dregið þá álykt- un, að hringurinn muni nær jafngamall öxinni, eða frá lokum fyrri hluta bronsealdarinnar. Það hefir meira að segja tekizt að ákveða aldur muna, er legið hafa áratugi á fornmenjasöfnum, því sjaldan hafa þeir verið svo vel hreinsaðir, að eigi megi við nákvæma leit finna á þeim einhver korn af jarðlagslagi því, er þeir hafa áður legið í, og frjógreina þau. Það eru og ýmsar aðrar jurtaleifar en frjóduftið, er þekkja má í smásjánum og margt má af ráða, og svo eru kísilþör- ungarnir. Það má meðal annars þekkja þær tegundir kísil- þörunga, er lifa í söltu vatni, frá þeim, er lifa í ósöltu vatni, og þar af fá vitneskju um, hvenær landið reis úr sjó. Við höfum t. d. mýri, er liggur 37 metra yfir sjávarmáli. Á tveggja metra dýpi í þessari mýri, eða 35 metra yfir sjávarmáli, byrja kísil- þörungar, er lifa í sjó. Ef við nú vitum, hversu mikið landið hækkar á öld, og það vitum við nokkurnveginn, þá vitum við um leið, hversu langt er síðan mýrin reis úr sjó. Hækki landið um hálfan meter á öld, eru um 7000 ár síðan þessi mýri reis úr sjó. Ég þykist nú hafa fært nokkrar sannanir fyrir sögu þeirri, er ég sagði í upphafi greinarinnar. „En“, munu ýmsir spyrja, „hvers vegna fengum við ekki að heyra sögu íslenzku mýranna?“ Það er ekki mér að kenna, auðvitað vildi ég helzt hafa sagt ykk- ur þá sögu, en ég kann hana eigi, og hana mun enginn kunna. Enginn hefir enn hlustað á sögu íslenzku mýranna, og munu þær þó hafa frá ýmsu fróðlegu að segja. Auðvitað eru sögur þeirra æði ólíkar sögum sænsku mýranna. Þær kunna eigi að segja frá furu og greni, eða suðlægari trjátegundum. Við fáum að öllum líkindum ekkert að heyra um frumstæða steinaldarmenn eða glæsibúna bronsealdar-höfðingja. En trjátegundirnar okkar, björkin, fjalldrapinn og reynir- inn eiga þar skráða sögu, er eigi mun ómerkilegri en hinna stór- vaxnari trjátegunda. Einirinn, víðirinn og lyngið eru einnig með á blaði. Ef til vill fáum við einnig að heyra harmsögu einhverra jurta og jafnvel trjátegunda, er hér námu land á góðöldunum eftir jökultimann, en dóu út aftur í harðærunum í bronsealdar- lokin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.