Náttúrufræðingurinn - 1934, Blaðsíða 63
NÁTTÚRUFR.
173
dekkri ásýndum fyrstu misserin. Nef og fætur eru og móleitari, en
síðar verður. Dúnungarnir eru dökkgráir hið efra, en ljósari á
kviðnum.
Stærð fullorðinna helsingja er talin sem hér segir: Lengd:
560—630 mm (Hörring), 632—694 mm (Kolthoff och Jáger-
skiöld), 596—711 mm (Alpheraky). Vængir: 370—420 mm (H),
369—417 mm (K. o. J.), 378—429 mm (A.). Nefið: 25—32 mm
(H.), 28—36,3 mm (A.). Fótleggir: 68—77 mm (H.). 63,5—76,2
mm (A.). Miðtáin: 58—64 mm (H.). Hér munar miklu, að höf-
undum þeim, sem um þessi efni hafa ritað, beri saman, og
liggur við að sinn segi hvað. Verður það helzt skýrt á þann hátt,
að stærðar breytileiki sé afar mikill, því ólíklegra er að væna þá
um þann hlut, að þeir hafi ekki greint á milli hálfþroskaðra og
fullorðinna helsingja. Sjálfur hefi eg því miður enn þá engar
athuganir gert í þessa átt. Hefi eg orðið að láta önnur viðfangs-
efni sitja í fyrirrúmi, en hér virðist vera verkefni fyrir höndum,
þar eð mér vitanlega hafa fáar eða engar athuganir verið gerðar
á íslenzkum helsingjum sérstaklega, en fróðlegt er að vita, hvern-
ig þeim er háttað.
HeimJcynni. Varpstaðir helsingjanna eru kunnir frá Norð-
austur-Grænlandi og Spitzbergen, en grunur leikur á, að þeir séu
víðar um austanvert Norðuríshafið, t. d. á Novaja Zemlia, Kolguev
o. v. Á vetrum eru helsingjarnir algengir gestir á sömu slóðum
í Norðurálfu og margæsirnar.
Hér á landi eru helsingjar algengir farand-farfuglar vor og
haust. Á vorin koma þeir um líkt leyti og margæsirnar, að minnsta
kosti ekki seinna, en ferðum sínum haga þeir talsvert á annan
veg. Margæsirnar fara, sérstaklega á vorin, meir með ströndum
fram, en yfir land, helsingjarnir fara hinar venjulegu fargæsa-
leiðir þvert yfir land frá suðri til norðurs á vorin, og fylgja þá
stóránum á þessari leið og koma aftur hina sömu leið að haust-
inu. Hefir áður verið vikið að farleiðum gæsanna norður og suður
um hálendi landsins og nægir að vísa til þess.
Helsingjarnir virðast vera all-vanafastir á þessum vor- og
haustferðum sínum, í sumum héruðum landsins eru þeir afar al-
gengir, en svo að segja sjást varla í öðrum landshlutum. Aðal
helsingja héruð landsins eru Skagafjörður og nágrenni hans, norð.
anlands, en láglendis héruðin sunnanlands, einkum meðfram ám
þeim, sem þar falla til sjávar, t. d. Ölfusá, Þjórsá og Markarfljóti.