Náttúrufræðingurinn - 1934, Page 47
KÁTTÚRUFR.
157
A. Fálmarar festir utan við hvylft augnanna. I. deild Cerambycinæ.
a. Frambolur með skörp horn á báðum hliðum. Ragium.
b. Frambolur ekki með skörp horn á hliðum.
1. Þakvængir mórauðir, styttri en flugvængir. Molorchus.
2. Þakvængir bláir, af líkri lengd og flugvængir. Cállidium.
B. Fálmarar festir í hvylft augnanna. II. deild. Lamiinæ.
Monochamus.
b. Fálmarar 2—5 sinnum lengri en bolurinn. Achanthocinus.
1. ættkvísl. Blómabukkar. Ragium. Fabr.
Vegna hinnar miklu vináttu sinnar við blóm, sem veita hun-
ang, hefir þessi ættkvísl, og nokkrar aðrar náskyldar, sem ekki eru
kunnar hér á landi, hlotið nafnið blómabukkar. — Aðeins ein teg-
und af þessari ættkvísl er hér kunn.
Barrskógabukkar. Ragium inquisitor Linn. (indagátor Fabr.).
Þakvængir með samfléttuðum svörtum og gulum flekkjum. Svörtu
flekkirnir hárlausir, og gulu flekkirnir ljósgulhærðir. Framan og
aftan við miðja þakvængina mynda svörtu flekkirnir greinilega
þverrönd. Líkaminn er að öðru leyti gráloðinn. Frambolurinn er
með afturbeygð horn á hvorri hlið. Eftir fyrsta frambolslið endi-
löngum er hárlaus, gljáandi miðlína, sem stundum er nær sundur-
slitin. Hver þakvængur er með þremur greinilegum langrifjum, er
sameinast að meira eða minna leyti við vængbroddinn.
Lengd 11—16 mm.
Lirfan lifir í greni- og furutrjám. Hefir fundizt einu sinni
hér á landi. Reykjavík, 20. apríl 1930.
2. ættkvísl. Molorchus. Fabr.
Þessi ættkvísl er sérkennileg og minnir á jötunuxana, vegna
hinna mjög stuttu þakvængja, sem eru meira en helmingi styttri
en flugvængirnir, er liggja ósamanbrotnir á afturbolnum.
Ein tegund af þessari ættkvísl er fundin hér.
Grábukkur. Molorchus minor L. (dinnidiatus Fabr.). Höfuð
og frambolur svart. Þakvængir brúnir, með ljósleita mjóa og slcá-
setta línu á hvorum væng. Fálmarar, sem eru fullkomlega líkams-
lengdin, eru gulmórauðir eins og útlimirnir, nema gildasti hluti
læranna ofan við hnén dökkrauð eða svört. Fálmarar karldýrs-
ins með 12 liðum.
Lengd 7—14 mm.
Lirfan lifir í furu- og grenitrjám. Fundin tvisvar sinnum: