Náttúrufræðingurinn - 1934, Page 48
158
NÁTTÚRUFR.
Reykjavík, 1918 og 1920. í annað skiptið í maísmjöli frá Norð-
ur-Ameríku.
3. ættkvísl. Callidium. Fabr.
Frambolur og þakvængir með málmgljáa. Þriðji liður fálmara
aldrei helmingi lengri en f jórði liður. Tvær tegundir hafa fundizt
hér á landi af þessari ættkvísl, þær má aðgreina þannig:
A. Frambolur með sama lit og þakvængir. C. violaceum.
B. Frambolur með öðrum lit en þakvængir. C. variabile.
Blábukkur. (C. violaceum Linn.). Allur líkaminn með svipuð-
um lit, fjólublár. Þó tíðum mismunandi dökkur. Flatvaxinn með
grófgerðum holum á frambol og þakvængjum.
Lengd 11—14 mm. — Lirfan í barrtrjám.
Þessi fallegi og auðkennilegi trjábukkur hefir oft á síðari
árum fundizt lifandi í húsum í Reykjavík, og einu sinni náðst á
Þingeyri við Dýrafjörð.
Beykibukkur. C. variabile Linn. (testaceum Fabr.). Mjög
breytileg tegund um stærð og útlit. Höfuð og fremsti frambolsliður
gulrauður að meira eða minna leyti. Þakvængir bláir. Fyrsti fram-
bolsliðúr alsettur smáholum. Á honum miðjum eru þrjár gljáandi
bungur. Gulrauði liturinn venjulega yfirgnæfandi á fálmurum og
fótum, þó eru minnstu liðir fálmaranna og lærin að mestu leyti
dökk. — Lengd 8—15 mm. Lirfan er í beyki o. fl. trjátegundum.
Fundin tvisvar í Reykjavík, 28. ágúst 1927 og 4. júlí 1983.
4. ættkvísl. Monochamus Latr.
Fálmarar lítið eitt lengri (kvendýr) eða miklu lengri (karldýr)
en bolurinn. Innsti liður fálmara greinilega styttri en þriðji liður
Frambolur með horn á hvorri hlið. Ytri brúnir þakvængja nær
samhliða á kvend., en á karld. fara vængirnir venjulega mjókkandi
eftir því, sem nær dregur vængbroddunum.
Ein tegund fundin hér á landi.
Svartbukkur. (Monochamus sútor Linn). Svartur að lit. Þak-
vængir með óreglulegum gulhærðum blettum hér og hvar, sem
smækka og fjölga nær vængbroddunum. Þakvængir grófholóttir
framantil, en smáholóttir er nær dregur vængbroddunum.
Lengd 16—24 mm. — Lirfan er í barrtrjám.
Fundin lifandi í Reykjavík 8. júlí 1916.
5. ættkvísl. Acanthócínus Steph. (Astynomus Steph.).
Fálmarar ákaflega langir. Á kvendýrinu 2 sinnum og karldýrinu