Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 75
NÁTTÚRUFR.
185
kvæmni er lögð í frásögnina hjá báðum höfundum, enda er ritið
ekki einungis til fróðleiks fyrir þá, sem vilja ferðast um einhverjar
fegurstu sveitir landsins í huganum, heldur einnig frábær leiðsögn
fyrir hina, sem koma á staðina, sem lýst er. Sérstök áherzla er lögð
á Mývatnssveitina, enda skiljanlegt þeim, sem þangað hafa komið,
svo mikla fegurð, og svo merka staði, sem þar er að finna. Bókinni
fylgir litprentað kort af Mývatni og umhverfi þess. 1 ritinu er
fjöldi ágætra mynda, og allur frágangur er til fyrirmyndar, svo
mjög ber hann af því, sem hér tíðkast með frágang á bókum.
Þorvaldur Thoroddsen: Lýsing íslands. Annað bindi, 3. hefti.
2. útg. Rvk. 1934. Mörg af hinum sígildu ritum Þorvaldar Thor-
oddsens hafa lengi verið uppseld, þar á meðal „Lýsing íslands“.
Úr þessu hefir sjóður Þorvaldar Thoroddsens nú verið að bæta, með
því að gefa út Lýsingu íslands. Nú er komið 3. hefti 2. bindis.
í því er fyrst yfirlit yfir loftslag Islands, þar næst lýsing á jurta-
gróðri landsins, og loks minnst á dýrin, sem á íslandi lifa. Út-
gáfunefndin hefir valið þá leiðina, að gefa bókina út óbreytta, því
fylgir sá kostur, að þessi útgáfa verður eins og hin, eins og hún
var frá hendi höfundar, en sá galli er á gjöf Njarðar, að margt
er úrelt. —
Rit eftir Jónas Hallgrímsson. IV, 1. Reykjavík, 1934. Bókin
er 302 bls. í stóru oktavo-broti, og vel til hennar vandað, eins og
allra þeirra rita. Við útgáfuna hefir auðsjáanlega handriti höfund-
ar verið fylgt vel, enda útgáfunni til sóma, jafnmikill afburðamaður
og Jónas var á íslenzka tungu. Eg vil ekki gera tilraun til þess að
tína til úr efni bókarinnar, lesarinn getur kynnt sér hana sjálfur,
og mun ekki verða fyrir vonbrigðum. ísafoldarprentsmiðja á mikl-
ar þakkir skilið fyrir að hafa ráðizt í þessa útgáfu, því dýr mun
hún, vera, og engu er til hennar sparað. Þeir, sem kunna að meta
beztu mennina, sem íslenzka þjóðin hefir alið, ættu ekki að
gleyma Jónasi.
Giinther Timmermann: Die Rotdrossel (Turdus musicus co-
burni Sharpe) als Stadtvogel in Súdwest-Island. Journal fúr Or-
nithologie, LXXXII, Heft 3, 1934. Höfundurinn er þýzki general-
konsúllinn hér í Reykjavík, sem er fuglafræðingur. Ritgjörðin
greinir frá því, hvernig íslenzki skógarþrösturinn hefir á síðari
árum hænst að mannabústöðum hér í Reykjavík, en höf. skýrir
einnig frá því, hvernig þrestir álfunnar hafi yfirleitt meira og
meira sótt inn í borgirnar, og orpið þar. Á. F.