Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 17
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 143
iiiiiimiiiiiiimiimiimimiiiiimiiimiiiiinimmiiminmmmmmmmmiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiimiiimimimiimiiimmiiiMiH
villtir úlfaldar, af þeim eru báðar tegundir tamdra úlfalda
komnar, bæði kameldýrið og drómedarinn. Þó er það nú talið
vafasamt, hvort úlfaldar þessir séu ekki tamdir úlfaldar, sem
smám saman hafa lagzt út, en hinir upprunalegu villiúlfaldar
séu nú dauðir. Eins og fjöldamörg önnur dýr, sem nú eiga ein-
ungis heima í heitu löndunum, hafa úlfaldarnir orðið til á Norð-
ursvæðinu, fyrsta þróunin hefir farið fram í N.-Ameríku, en
síðan hefir hún haldið áfram í Evrópu, og lokið þar að fullu.
Út frá hinum frumlega stofni úlfaldaættarinnar hefir snemma
klofnað grein, sem seinna varð að lamadýrinu, og ættingjum
þess í Suður-Ameríku, en á þau dýr hefir verið minnzt áður.
Eitt af mörgu, sem er markvert í dýralífi Norðursvæðisins, er
útbreiðsla hjartategundanna. Fyrst er að nefna þá tegund, sem
við könnumst bezt við, einu tegundina, sem til er nú á íslandi, en
hún er hreindýrið. Það lifir nú í öllu kuldabeltinu, alla leið
kringum heimskautið. Allt er sama tegundin, en mörg afbrigði
eru af henni hvert á sínum stað. Talið er það nokkurn veginn
víst, að hreindýrið hafi orðið til í Grænlandi, eða ef til vill í
Norður-Ameríku, en dreifzt svo þaðan vestur á bóginn til Asíu-
landanna, og austur á bóginn til Evrópu, og fyrr á tímum hefir
heimkynni þess náð miklu lengra suður á bóginn en nú. Þess
má til dæmis geta, að fyrir Isöldina komst það alla leið suður
að Miðjarðarhafi, enda þótt það hafi þar ef til vill aldrei verið
mjög útbreitt. í Evrópu og Asíu er ein tegund af elg, en önnur,
skyld henni, er til vestan hafs. Líklega hefir tegundin orðið til í
Evrópu, en dreifzt fyrst þaðan til Asíu, og svo aftur þaðan
lengra austur á bóginn til Ameríku, og myndað þar nýja teg-
und. Ýmsar aðrar tegundir en þessar tvær, eru í Evrópu, mætti
þar til dæmis telja krónhjörtinn, en í Ameríku eru aðrar teg-
undir, en þó skyldar.
Þá má að lokum, áður en lokið er við að tala um spendýrin á
Norðursvæðinu, aðeins nefna tvær ættir, nautpening og sauð-
fé, og skal rétt drepið á helztu tegundirnar. Á Korsíku og Sar-
diníu lifir villt fjártegund, sem hvergi er til annars staðar.
Önnur er í Atlasfjöllunum í Afríku, og austur í Asíu eru þó
nokkuð margar tegundir af villtu fé. Merkastar eru þó tvær
tegundir, vegna heimkynnisins, en þær eru fjártegund, sem nú
á aðeins heima á Kamtschatka, austast í Norður-Asíu, og teg-
und, sem á heima í Klettafjöllunum í Norður-Ameríku, á öllu
svæðinu frá New-Mexico til Alaska. Þessar tvær tegundir eru