Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 60

Náttúrufræðingurinn - 1938, Síða 60
186 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiimmiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiimmiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiMimiiiiiiiiiiiiimii Ferðir íslendinga tii Ameríku í fornöld. Það eru til sögulegar heimildir fyrir því, að sumir forfeður vorir hafi til forna lagt leið sína frá Grænlandi til Ameríku. Nú virðast náttúrufræðileg sönnunargögn ætla að bætast við. Árið 1932 var danski jurtafræðingurinn, Dr. Johs. Iversen, á ferð í Grænlandi, og kom þá meðal annars til staðar þess innst í Godt- haab-firðinum, sem nú heitir Nunatarssuak. Staðurinn er nú mjög afskekktur og illt að komast þangað, vegna þess að hann er á þrjá vegu umluktur jöklum, og á þann fjórða ísi fylltum firði, enda langt frá manna bústöðum. Iversen fann nú þarna plöntu, sem aldrei áður hefir fundizt í köldu löndunum. Hún telst til lilju- ættarinnar, og heitir á latínu Sisyrhynchium angustifolium, en næsti staðurinn, sem hún er til á, er á Nýfundnalandi, um 1700 km sunnar. Nú er þannig háttað með jurt þessa, að því er Iver- sen segir í Naturhistorisk Tidende (1938, bls. 114), að hún er all hitasækin, og getur því ekki hafa lifað þarna meðan á ísöldinni stóð, því enda þótt þá kunni að hafa verið auðir blettir á Græn- landi, eins og verður að gera ráð fyrir, þá hefir hitinn ekki verið nægilega mikill, að dómi Iversens, til þess að hún gæti þrifizt. Af því leiðir, að hún hefir hlotið að berast til Grænlands á einn eða annan hátt eftir ísöldina. Með fuglum eða vindi geta fræin ekki borizt, til þess eru þau of þung, og að öllu leyti illa til þess fallin. Með straumum hefir tegundin eigi heldur átt auðsótt með að komast frá Ameríku til Grænlands, þar sem hafstraumar við Austurströnd N.-Ameríku liggja til suðurs, en ekki til norðurs. Þá er eftir sá eini möguleiki, að jurtin hafi borizt með mönnum. Þótt einhverjar samgöngur hafi verið milli N.-Ameríku og Græn- lands í seinni tíð, þá er óhugsandi, að plantan hafi flotið í þeirra skjóli, vegna þess, að staðurinn, þar sem hún vex nú, er algerlega einangraður og hefir verið það, síðan saga Grænlands hófst að nýju. Eini möguleikinn, sem þá er eftir, er sá, að plantan hafi borizt með Ameríkuförum í fornöld. Það er kunnugt, að margar plöntur hafa borizt frá Evrópu til Grænlands (einkum sem fræ í heyi) með víkingunum á söguöld- inni. Um hitt hafa jurtafræðingar deilt, hve margar af Evrópu- tegundum Grænlands séu komnar þangað á þennan hátt. Þeir, ,sem lægst geta, telja 6 tegundir, en hinir, sem hæst fara, tilgreina

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.